Hvar er Haddaway? 15. júlí 2006 16:00 DJ Kiki-OW og Dj Curver Spila Dr. Albarn og Delight, Haddaway og 2Unlimited á annarri ´90-samkomu sumarsins. MYND/Hari
Annað "90-partí sumarsins verður haldið á Bar 11 í kvöld en forkólfar þess eru plötusnúðarnir DJ Curver og DJ Kiki-Ow. Yfirskrift kvöldsins er "No Limits" sem vísar til ódauðlegrar lagasmíðar hljómsveitarinnar 2Unlimited sem gerði garðinn frægan á árunum sem sumir vildu gleyma en nú er kominn tími til að minnast. Gífurleg stemning myndaðist á skemmtistaðnum Bar 11 þegar fyrra "90-kvöldið var haldið nú í sumar og komust þá færri að en vildu. Tónlist og tíska frá tíunda áratugnum á nú upp á pallborðið á ný og segir í fréttatilkynningu skipuleggjendanna að nú vaði þessi músík uppi á meginlandinu, einkum í Þýskalandi, og er rætt um endurkomu menningarfyrirbrigðisins "reif" sem á sínum tíma vakti óhug foreldra en umtalsverða kátínu ungmenna. Hvetja skipuleggjendurnir til þess að fólk klæði sig eftir tilefninu og dragi fram "stüssy"-klæðnaðinn, samfestingana og hvítu gallabuxurnar auk nauðsynlegra fylgihluta á borð við glósprota, flautur og hanska sem máski geta hjálpað fólki að komast í rétta gírinn. Nostalgían hefst formlega á miðnætti og varir eitthvað út í íslensku sumarnóttina. Aðgangur er ókeypis.
Menning Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fleiri fréttir Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Sjá meira