Unga fólkið mjög jákvætt 15. júní 2006 07:00 helgi vilhjálmsson í góu Sannfærður um að lífeyrissjóðirnir geti gert skurk í öldrunarmálunum.fréttablaðið/heiða
Helgi Vilhjálmsson, eigandi sælgætisverksmiðjunnar Góu, boðaði til blaðamannafundar í gær þar sem hann kynnti niðurstöður nýrrar rannsóknar er kannaði viðhorf fólks til málefna lífeyrissjóðanna. Rannsóknin var kostuð af Helga en unnin af IMG Gallup. Þar kemur fram að rúm 48 prósent aðspurðra telja að hlutverk lífeyrissjóða eigi að vera að byggja hjúkrunarrými eða þjónustuíbúðir fyrir aldraða sjóðsfélaga sína. Þegar niðurstöður rannsóknarinnar eru skoðaðar vekur athygli að þeir sem vilja að lífeyrissjóðir bæði byggi og reki hjúkrunarheimili eða þjónustuíbúðir fyrir aldraða eru flestir í yngsta aldurshópnum, 16 til 24 ára, og þeim elsta, 55 til 75 ára. Aðspurður hvers vegna Helgi hafi ákveðið að láta gera þessa rannsókn segir hann það tilkomið eftir að hafa séð vistarverur föður síns á dvalarheimilinu þar sem hann bjó þegar hann varð áttræður. "Hann deildi þá herbergi með öðrum karli og þar var einn stóll, en ekki einu sinni borð til þess að tefla á," segir Helgi. "Þá fór ég að hugsa að það hlyti að vera eitthvað sem þessir digru lífeyrissjóðir gætu gert fyrir gamla fólkið svo að það þyrfti ekki að búa við svona aðstæður."
Innlent Mest lesið Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Eldur í sendibíl á Miklubraut Innlent Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Erlent Fleiri fréttir Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Sjá meira