Efast um skynsemi vísindaveiðanna 15. júní 2006 06:45 Hilmar Malmquist Telur hrefnuveiðarnar ekki skila mikilvægum niðurstöðum í rannsóknarlegu tilliti.
Hvalaskoðunarsamtök Íslands sendu í gær frá sér fréttatilkynningu þar sem fyrirhuguðum veiðum á 50 hrefnum í vísindaskyni er harðlega mótmælt. Í fyrra voru 39 hrefnur veiddar í vísindaskyni en ákveðið að hafa skammtinn 50 dýr á þessu ári til þess að flýta rannsóknunum. Samtökin mótmæla jafnframt "fullyrðingu Hafrannsóknastofnunar um að þessi ákvörðun sé í samræmi við hvalarannsóknaráætlun sem lögð var fyrir vísindanefnd Alþjóða hvalveiðiráðsins árið 2003", eins og segir orðrétt í tilkynningunni. Áætlunin gerði ráð fyrir því að 200 hrefnur, 200 langreyðar og 100 sandreyðar yrðu veiddar á tveimur árum. Doktor Hilmar Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs, segir mörgum spurningum varðandi veiðarnar vera enn ósvarað. "Hvað ætlar Hafrannsóknastofnun að gera við niðurstöðurnar sem fást úr þessum vísindaveiðum? Ef það kemur í ljós, að hrefnustofninn er að éta mikið af nytjafiski, til hvaða ráðstafana verður þá gripið? Ég myndi telja skynsamlegra að efla rannsóknir á stærð hrefnustofnsins, frekar en að veiða nokkur dýr á ári," segir Hilmar og leggur áherslu á að það skipti miklu máli að vita hversu stórir hvalastofnarnir eru, ef það á að veiða þá á annað borð, en minna máli skipti hvað hvalirnir séu að éta. Ásbjörn Björgvinsson, formaður Hvalaskoðunarsamtaka Íslands, segir vísindaveiðarnar hafa skaðað hvalaskoðunargreinina með beinum hætti. "Hrefnuveiðimenn veiða oftar en ekki svokallaða "skoðara", sem eru hrefnurnar sem koma nálægt bátunum. "Skoðararnir" eru okkar söluvara í hvalaskoðuninni og þess vegna skaðar það greinina með beinum hætti þegar dýrin eru veidd," sagði Ásbjörn og lagði áherslu á að Hafrannsóknastofnun gæti ekki fullyrt um það hvort stærð hrefnustofnsins gæti haft veruleg áhrif á afrakstursgetu nytjafiska. "Stofnunin hefur slegið því fram, með stórum orðum, að stærð hrefnustofnsins geti haft veruleg áhrif á afrakstursgetu nytjafiska. Fram á þetta hefur aldrei verið sýnt og það er ábyrgðarlaust af hálfu stofnunarinnar að lýsa þessu yfir, án nokkurra forsenda. Auk þess skaða veiðarnar, sem skila engum tekjum heldur aðeins kostnaði, atvinnugrein sem skilar miklum tekjum í þjóðarbúið."
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Sjá meira