Syngur dúett með Ellý Vilhjálms 17. júlí 2006 12:30 Söngvarinn og sjávarútvegsráðherra. Raggi Bjarna afhenti Einari K. Guðfinnssyni eintak af diskinum Vel sjóaður. Á diskinum eru samankomnir margir af bestu söngvurum landsins.
Stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason færði Einari Kristni Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra eintak af nýju plötunni sinni, Vel sjóaður, sem kom út á þriðjudaginn var. Á diskinum er að finna fjórtán sjómannalög "Við ákváðum að gefa út sjómannadisk til að minnast íslenskrar sjómannastéttar. Tímabilið sem við áttum allt okkar undir gömlu bátunum er að líða undir lok og okkur datt í hug að það væri gaman að minnast þess með því að gefa út ekta sjómannaplötu," segir Raggi. "Við stóðum á öxlunum á sjómönnunum um árabil og því vert að minnast þeirra." Þótt Raggi hafi ekki sjálfur verið á sjó fékk hann smjörþefinn af henni í kringum síldarævintýrin. "Þá áttaði ég mig á því hversu mikilvægur fiskurinn var okkur." Raggi segist einu sinni hafa hitt gamlan sjómann sem spurði hvort hann væri ekki Raggi Bjarna. "Ég játti því og þá sagðist maðurin vera kominn með leið á mér. Ég spurði af hverju og þá sagði hann mér að hann hafi einu sinni staðið úti á dekki og verið að gera að í vitlausu veðri um hávetur. Slorið var út um allt og það var gamall hátalari festur við mastrið," segir Raggi hlæjandi þegar hann rifjar upp söguna. "Sjómaðurinn sagði lagið mitt Ship og hoj hafa verið spilað og ég hafi sungið það eins og það væri ekkert mál að vera úti á sjó." Á Vel sjóaður syngur Raggi dúett með Þorvaldi Halldórssyni, Helenu Ólafsdóttur og Ellý Vilhjálms. "Við fengum leyfi til að taka sönginn hennar Ellýar út af lagi sem heitir Sumarauki en er betur þekkt sem Gullfoss með glæstum brag. Þannig gátum við tekið upp dúettinn okkar," útskýrir Raggi. "Það var ótrúlegt augnablik þegar ég heyrði útkomuna."
Menning Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Sjá meira