Hætta ekki áður en þau koma til Íslands 17. júlí 2006 10:00 Nick Diamonds og félagar spila á Airwaves-hátíðinni í október.
Kanadíska hljómsveitin Islands er ein af þeim erlendu sveitum sem munu spila á næstu Iceland Airwaves hátíð en fyrsta plata sveitarinnar, Return to the Sea, hefur verið hampað af mörgum gagnrýnendum sem ein besta poppplata ársins. Steinþór Helgi Arnsteinsson fór á tónleika með sveitinni í smáborginni Münster í Þýskalandi fyrir stuttu og spjallaði þar við nokkra meðlimi sveitarinnar. Hljómsveitin Islands á sér nokkra stutta sögu en hún var stofnuð út frá rústum hljómsveitarinnar The Unicorns sem lagði upp laupana með nokkrum hvelli árið 2004. Tveir meðlimir Unicorns, þeir Nick Diamonds og J'aime Tambeur, tóku sig þá saman, stofnuðu Islands og í byrjun árs 2006 kom frumburður sveitarinnar út, hin fyrrnefnda Return to the Sea, en hún var að öllu leyti byggð upp á lögum sem Nick hafði samið enda mætti kalla hann æðstastrump sveitarinnar Ekki leið hins vegar á löngu fyrr en að J'aime hafði sagt skilið við sveitina og nýr trommuleikari hafði tekið við en alls skipa sveitina sjö manns og er nýjasta viðbótin kærasta Nicks, sem spilar á fiðlu og syngur bakraddir. Eyjur, ekki eyjurnarHljómsveitin var stödd í Münster í tilefni af tónleikaferðalagi hennar um Evrópu þegar ég hitti sveitina. Við bílastæði tónleikastaðarins Gleis 22 settist ég niður með þremur meðlimum sveitarinnar, þeim Nick Diamonds, nýja trommuleikaranum, Aaron Harris, og Patrick Gregoire, sem hefur það skemmtilega hlutverk að spila á bassaklarinett. Fyrst lá mér forvitni á að vita afhverju hljómsveitin setti ekki "The" fyrir framan nafnið á sveitinni eins og allar aðra sveitir í dag. „Af því að þetta eru eyjur ekki eyjurnar. Þetta er einungis falleg sjónræn myndlíking um okkur manneskjurnar," útskýrir Nick sjálfur. Þrátt fyrir að Islands sé tiltölulega ný hljómsveit þá hefur hún frá fyrsta degi verið líkt við The Unicorns, jafnvel þó að aðeins 1/7 af Islands hafi verið í þeirri hljómsveit. „Stundum líkar mér vel við samanburðinn, leynilega, en yfirleitt fer hann bara í pirrurnar á mér," segir Nick en það er mjög áberandi hversu mikill forrystumaður hann er í sveitinni. „Það er kannski fullmikið sagt að segja að hann sé eins og faðir okkar, meira svona ábyrgðarfullur, eldri bróðir," játar Patrick. Flottir í hvítuHljómsveitin hefur þá sérstöðu þegar hún spilar á tónleikum að klæðast hvítu. Aaron segir þó að það sé góð ástæða fyrir því. „Það er fínt fyrir hljómsveitina að líta vel út á sviðinu. Þá sjá áhorfendur líka sveitina sem hóp en ekki sem einhverja ótengda einstaklinga. Fólk man einnig eftir slíku." Tónleikar virðast þannig skipta miklu máli fyrir meðlimi Islands enda hefur hún verið á tónleikaferðalagi upp á nær hvern dag síðasta hálfa árið. Ein af ástæðum fyrir upplausn The Unicorns var einmitt mikið tónleikaferðalag og nú þegar hefur einn meðlimur Islands hætt af, svo virðist, sömu ástæðu. Er Nick því ekkert hræddur um að Islands hljóti sömu örlög og Unicorns? „Ég hugsa að ég sé bara svona heimskur, ég festist alltaf í sama farinu og virðist ekki læra neitt af mistökunum. Tónleikaferðalög eru erfið og ég ætla ekki að ljúga að þér en það hafa verið ýmsar uppákomur. Við höfum barist, bæði andlega og líkamlega. Á endanum stöndum við samt alltaf saman í gegnum súrt og sætt." Islands er að lang mestum hluta skipuð Kanadabúum en hljómsveitir frá Kanada hafa einmitt verið að vekja gríðarlegt umtal meðal þekktra tónlistarmiðla undanfarin tvö til þrjú ár. Má í því samhengi til dæmis nefna hljómsveitir á borð við Arcade Fire, Wolf Parade, Broken Social Scene, The New Pornographers og fleiri. „Á ákveðnum fresti verða alltaf ákveðnar borgir mjög vinsælar og hljómsveitir frá þeirri borg frá meiri athygli og Kanada er ekkert annað en borg í augum Bandaríkjamanna," útskýrir Aaron skemmtilega. Langar að vinna með Kurt CobainNick er síðan fljótur að svara því hver sé helsti styrkleiki hljómsveitarinnar. „Bassaklarinettið," segir Nick mjög einlægt. „Og ég! Bassaklarinettið og ég. Síðan er hægri trommuhöndin á Aaron alveg mögnuð," bætir Nick brosandi við. Svörin vantar heldur ekki þegar þeir eru spurðir um hvernig sé formúlan að góðu poppi sem Islands eru greinilega að reyna að gera. „Erindi-viðlag-erindi-viðlag-brú-viðlag," „Þurfa að vera átta mínútna löng," „Tala um undarleg og söguleg efni í textanum," „Þurfa oft að vera án söngs," voru nokkru af þeim svörum sem ég fékk. Þrátt fyrir að sveitin sé nýlega búin að senda frá sér plötu má búast við nýrri plötu strax snemma á næsta ári. Í nýlegu viðtali gaf Nick það út að hann vildi að Jeff Lynne, meðlimur ELO, myndi sjá um upptökustjórn á nýju plötunni en núna hefur hann aðrar hugmyndir. „Ég skipti um skoðun í síðustu viku. Núna væri ég alveg til í að fá Phil Spector og Suge Knight væri líka alveg töff. Mest af öllu vil ég samt fá Kurt Cobain, ég myndi alveg vera tilbúinn að borga honum milljón dollara fyrir." Vilja gera myndband á ÍslandiEftir nokkurn tíma næ ég þó að draga piltana úr dagdraumum þeirra og spyr þá út í væntanlega heimsókn þeirra til Íslands, sem þeir eru allir afar spenntir yfir. Nokkrir óspennandi frasar fá síðan að heyrast, eins og að það sé í raun Grænland sem sé kalt og Ísland sem sé grænt, að stelpur á Íslandi séu rosalega fallegar og annað í svipuðum dúr. Þeir höfðu reyndar ekki heyrt um Bláa lónið en þegar ég segi þeim að Lisa "Left Eye" Lopes og Mel C hafi tekið upp myndband þar ákveða þeir á staðnum að þeir þurfi að gera slíkt hið sama. Áður en Islands koma til Íslands er hins vegar margt framundan, tugir tónleika og mikil ferðalög. Í ljósi sögunnar, þá hlýtur maður samt að spyrja sig að þeirrar spurningar hvort hljómsveitin verði ekki hætt áður en hún nær til Íslands. „Ekki kannski alveg hætt en ég verð vonandi hættur í sveitinni og verð orðinn að konu," svarar Aaron. „Nei, nei, við verðum ekkert hætt. Hljómsveitin verður einungis orðin virkilega þétt," bætir Nick við ákveðið. Í þeim töluðum orðum heyrum við að þýska upphitunarhljómsveitin er byrjuð að spila og því kominn tími fyrir piltana að gera sig klára.
Menning Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Unnur Borg og Gugga saman í paradís Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira