Grallararnir í Baggalúti hafa í gegnum árin gefið út eitt jólalag fyrir hver jól á heimasíðu sinni við miklar vinsældir. Þar hafa þeir gert óborganlega íslenska jólatexta við þekkt erlend lög.
Á þessari plötu er þessum jólalögum safnað saman auk nokkurra nýrra sem voru tekin upp sérstaklega í tilefni útgáfunnar.
Jól og blíða er önnur plata Baggalúts á skömmum tíma, því í sumar gáfu þeir út plötuna Apar í Eden. Kannski telja einhverjir sig hafa fengið nóg af þeim félögum en þessi nýja plata er engu að síður vel heppnuð.
Bráðskondnir textarnir eru sem fyrr í fyrirrúmi. Fjalla þeir oft á kaldhæðnislegan hátt um Íslendinga og séríslenskt jólahald þeirra.
Skemmtilegustu lögin og jafnframt þau jólalegustu eru Kósíheit par exelans, Sagan af Jesúsi og Rjúpur. Önnur lög á borð við Föndurstund, Þorláksmessa og Gleðileg jól eru kannski ekki eins jólaleg en engu að síður virkilega fyndin. Að raula „gleðileg jól“ í stað „run to the hills“ ber óneitanlega vott um hugmyndaríki Baggalúts og eflaust kæmust engir aðrir upp með þetta nema þeir. Lag Braga Valdimars Skúlasonar, sem er eina lagið á plötunni eftir meðlim sveitarinnar, er jafnframt fallegt og ákaflega jólalegt.
Þessi plata sínir hversu auðvelt Baggalútur virðist eiga með að aðlaga erlend lög að íslenskum veruleika. Nóg væri að hlusta á hana bara til að heyra textana en hún hefur samt miklu meira til síns ágætis, því söngurinn og flutningurinn ber einnig vott um mikla fagmennsku.
Freyr Bjarnason