Stjórnarmenn í SPH yfirheyrðir 4. janúar 2006 18:45
Stjórnarmenn í Sparisjóði Hafnarfjarðar voru fyrirvaralaust færðir til yfirheyrslu hjá Ríkislögreglustjóra í gær með hótun um handtöku. Stjórnarmennirnir hafa réttarstöðu grunaðra í lögreglurannsókn sem beinist að því hvort hegningarlög og lög um fjármálafyrirtæki hafi verið brotin í tengslum við valdatöku nýrra aðila í sparisjóðnum síðastliðið vor. Brotin varða allt að eins árs fangelsi. Ekki hafa fengist staðfestar upplýsingar um hversu viðamikil þessi lögregluaðgerð er en eftir því sem næst verður komist voru þeir stjórnarmenn í Sparisjóði Hafnarfjarðar, sem staddir voru á landinu, færðir til yfirheyrslu í höfuðstöðvum Ríkislögreglustjóra með hótun um handtöku, þeim gert ljóst að þeir hefðu réttarstöðu grunaðra og þeim boðið að með sér verjanda. Forsögu þessa máls má rekja til sögulegs aðalfundar sparisjóðsins í aprílmánuði en þar var fyrri stjórn velt úr sessi og nýir aðilar tóku við stjórnartaumum. Fjármálaeftirlitið telur að valdatakan í Sparisjóðnum kunni að hafa verið lögbrot og vísaði því málinu nýlega áfram til Ríkislögreglustjóra. Aðilar hafi brotið af sér með því með því að sammælast um beitingu atkvæðisréttar á aðalfundinum og um sölu stofnfjár í sparisjóðnum. Lögreglurannsóknin beinist að því hvort ákvæði laga um fjármálafyrirtæki hafi verið sniðgengin en þar segir að aðilar sem hyggjast eignast virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki skuli leita samþykkis Fjármálaeftirlitsins fyrir fram. Með virkum eignarhlut er átt við beina eða óbeina hlutdeild í fyrirtæki sem nemur 10% eða meira af eigin fé, stofnfé eða atkvæðisrétti, eða aðra hlutdeild sem gerir kleift að hafa veruleg áhrif á stjórnun viðkomandi fyrirtækis. Brot gegn þessum lögum varðar allt að eins árs fangelsi. Ennfremur er verið að rannsaka hvort ákvæði hegningarlaga kunni að hafa verið brotin, þess efnis að ef maður gefur opinberu stjórnvaldi ranga yfirlýsingu um málefni, sem honum er skylt að gefa upplýsingar um, þá skuli hann sæta sektum eða fangelsi allt að 4 mánuðum. Það vakti mikla athygli í vor þegar spurðist út að byrjað væri að selja stofnfjárbréf fyrir háar fjárhæðir. Nýja stjórnin kom því til leiðar að stofnfjáreigendur gátu farið að selja bréf sín en þeim buðust 50 milljónir króna fyrir hlut sem upphaflega var keyptur á 200 þúsund krónur. Meðal stofnfjáreigenda var Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. Matthías faðir hans, og fyrrum ráðherra, fór fyrir hópnum sem áður stýrði sparisjóðnum en varð undir á aðalfundinum í vor. Árni staðfesti í dag að hann hefði selt sín stofnfjárbréf í haust fyrir 50 milljónir króna. Þau bréf hefðu þó ekki verið seld fyrr en Fjármálaeftirlitið hafði kannað söluna gaumgæfilega og stjórn Sparisjóðsins samþykkt hana.
Fréttir Innlent Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira