2 handteknir til viðbótar - 2 kæra gæsluvarðhaldsúrskurð 19. apríl 2006 13:41 MYND/GVA
Tveir Íslendingar voru handteknir í gær í tengslum við stóra fíkniefnasmyglið sem komst upp í byrjun apríl. Tveir þeirra sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald um helgina hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Málið kom fyrst upp þann þriðja apríl síðastliðinn þegar tollgæslan fann fíkniefni í notaðri fólksbifreið sem flutt hafði verið til landsins. Samkvæmt heimildum NFS er um að ræða á milli tuttugu og þrjátíu kíló af amfetamíni og hassi. Lögreglan lét til skarar skríða, með liðsinni sérsveitar lögreglunnar, að kvöldi Skírdags þegar þrír menn tæmdu bílinn af fíkniefnunum í iðnaðarhúsi á Höfðanum í Reykjavík. Þrír Íslendingar og einn Hollendingur voru í framhaldinu úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 5. maí. Tveir manna hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar og verður hann að líkindum tekinn fyrir í dag. Í gær voru tveir Íslendingar til viðbótar handteknir í tengslum við rannsókn málsins en sleppt að loknum yfirheyrslum. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, staðfesti þetta í samtali við fréttastofuna í morgun, en vildi ekki veita nánari upplýsingar um málið. Í tilkynningu sem lögreglan hefur sent frá sér segir að ótímabær fréttaflutningur af málinu hafi þegar komið sér illa fyrir rannsóknina, og vegna rannsóknarhagsmuna verði að svo komnu ekki veittar frekari upplýsingar um málið. Í tilkynningunni er þó staðfest að um sé að ræða verulegt magn fíkniefna og með því mesta sem lagt hafi verið hald á í einu lagi hér á landi.
Fréttir Innlent Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Sjá meira