Gagnrýnir ummæli Sveins Andra 29. apríl 2006 16:07 Mynd/GVA
Hreinn Loftsson hæstarréttarlögfræðingur hefur gert athugasemd við ummæli Sveins Andra Sveinssonar hæstarréttarlögmanns í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Hreinn gagnrýnir Svein fyrir að tjá sig um hver hugsanleg niðurstaða yrði í málinu á hendur Jón Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum. Hreinn segir í athugasemd sinni að skoðun Sveins byggi varla á gögnum í málinu né þeirri grundvallarreglu að hver sé saklaus uns sekt sé sönnuð. Athugasemd frá Hreini Loftssyni, hrl. og stjórnarformanni Baugs Group hf., vegna fréttar Ríkissjónvarpsins í gær, 28. apríl: Vegna ummæla sem höfð voru eftir Sveini Andra Sveinssyni hæstaréttarlögmanni í kvöldfréttatíma Ríkissjónvarpsins, föstudaginn 28. apríl, um svokallað Baugsmál, gerir undirritaður eftirfarandi athugasemd: Gera verður ríkar kröfur um hvernig fjölmiðlar fjalla um mál sem eru til meðferðar hjá dómstólum. Það á ekki síst við um val á álitsgjöfum sem fjölmiðlar leita til. Þess þarf að gæta að ekki sé vegið að einstaklingum með ósæmilegum hætti. Ummæli Sveins Andra Sveinssonar eru ekki sæmandi lögmanni sem hefur atvinnu af því að gæta hagsmuna einstaklinga í sakamálum. Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins lýsti lögmaðurinn því yfir hver yrði líkleg niðurstaða í máli á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum. Álit lögmannsins byggist hins vegar varla á mati á gögnum málsins né þeirri grundvallarreglu réttaríkisins að hver maður teljist saklaus uns sekt hans er sönnuð fyrir dómstólum. Á hvaða hvötum byggist álit lögmannsins? Í ummælum Sveins Andra er ekkert tillit tekið til þess að búið var að gefa út ákæru í málinu einu sinni áður. Sú ákæra fékk hraksmánarlega útreið í dómskerfinu. Nú hefur ákæruvaldið fengið leiðbeiningar frá Hæstarétti til að leiðrétta vinnubrögð sín. Slíkt er ekki í samræmi við grunnreglur réttarríkisins. Sveinn Andri Sveinsson vísar m.a. til að hér sé um að ræða mál sem megi finna hliðstæðu í svokölluðu Landssímamáli. Þessi mál eru hins vegar gjörólík, bæði efnislega auk þess sem Landssímamálinu var ekki vísað frá dómi. Samanburðurinn er því hvorki viðeigandi né efnislega réttur. Mér hefur gefist kostur á að yfirfara gögn alls Baugsmálsins, ólíkt Sveini Andra. Eftir að hafa ígrundað gögnin er það skoðun mín að enginn grundvöllur er fyrir því að sakfella hina ákærðu, Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggva Jónsson, í máli þessu. Hvað ætli Sveini Andra Sveinssyni gangi svo til? Af hverju lýtur Baugsmálið svokallaða öðrum forsendum í huga hans en önnur opinber mál sem hann ýmist vinnur að eða tjáir sig um. Skýringuna má kannski finna í því að hann hefur lýst því yfir á fundi hjá Lögmannafélagi Íslands að honum sé svo illa við Baug að hann vildi helst losa sig við baugfingurinn. Þá er lögmaðurinn tengdur Styrmi Gunnarssyni, ritstjóra Morgunblaðsins, fjölskylduböndum en Styrmir er einn helsti hvatamaður upphafs rannsóknar á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum sem tengjast Baugi eins og Fréttablaðið opinberaði síðasta sumar. Skyldi Sveinn Andri koma fram sem lögmaður þegar hann gefur álit af þessu tagi eða ráða aðrar hvatir för? Fjölmiðlar ættu að hafa þessi tengsl í huga, áður en Sveinn Andri verður aftur kallaður til sem „óháður" álitsgjafi í Baugsmálinu. Hreinn Loftsson hrl. og stjórnarformaður Baugs Group hf.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira