Stefnt að ásættanlegu risi 14. júlí 2006 09:00 fjöllistahópurinn gelitin Aðeins þeir sem sjá hið ósýnilega geta gert hið ómögulega. MYND/Hörður
Listasýningin Hugris verður opnuð í Kling & Bang galleríi við Laugaveg annað kvöld en þar sýnir fjöllistahópurinn Gelitin afrakstur vinnu sinnar hér á landi en meðlimir hafa ferðast um landið undanfarna daga og aflað sér gagna, orku og andlegrar reynslu. Listamennirnir munu flytja samnefndan gjörning og afhjúpa umgjörð sem þeir hafa skapað með kjöraðstæður í huga enda krefst gjörningurinn gífurlegrar einbeitingar. Í Gelitin-hópnum eru fjórir listamenn frá Austurríki, þeir Tobias Urban, Wolfgang Gantner, Florian Reither og Ali Janka. Þeir hafa þekkst í tæp þrjátíu ár en starfað náið saman frá 1993 og verið tíðir gestir á mörgum af helstu söfnum og galleríum heims. Ekki er vitað hversu lengi gjörningur þeirra mun standa en hann ku verða háður því að ásættanlegu risi verði náð enda greinir fréttatilkynning hópsins frá því að fyrrnefnt ris og kjarni þeirrar tilraunar sem Gelitin-hópurinn vinnur með feli í sér fullkomnun á ímyndunaraflinu þar sem ímyndun er kjarni þess að vera til. Ímyndunaraflið getur mótað veruleikann og aðeins þeir sem sjá hið ósýnilega geta gert hið ómögulega. Þeir sem segja að það sé ekki hægt ættu ekki að trufla þá sem eru að gera það. Sýningin hefst kl. 19.30 á laugardagskvöldið. Kling & Bang gallerí er opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14-18 og stendur sýning Gelitin yfir til 13. ágúst.
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira