Segja heimastjórn Palestínumanna bera ábyrgðina 18. apríl 2006 14:47 Ættingjar syrgja einn þeirra, sem létust í árásinni, í bænum Sholom í dag. MYND/AP
Ísraelar segja heimastjórn Palestínumanna, undir forystu Hamas-samtakanna, bera ábyrgð á sjálfsvígsárás sem varð níu manns að bana í Tel Aviv í gær. Herforingjar vilja svara með árás á heimastjórnarsvæðið. Hamas-liðar hafa ekki viljað fordæma árásina í gær og segja hana réttmæta sjálfsvörn. Sjálfsvígsárásin í gær var sú mannskæðasta í Ísrael í tuttugu mánuði. Auk þeirra níu sem létu lífið særðust fimmtíu. Árásarmaðurinn var áður sagður sextán ára en er nú sagður tuttugu og eins árs. Hann var liðsmaður palestínsku samtakanna Heilagt stríð. Í gær féll sautján ára Palestínumaður þegar Ísraelsher gerði flugskeytaárás á bæinn Beit Lahiya auk þess sem árás var gerð á meinta bækistöð palestínskra vígamanna í Gaza-borg. Enginn féll í þeirri árás. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, átti í morgun fund með ráðgjöfum sínum til að ræða hvernig bregðast ætti frekar við árásinni. Lagt var til að heimastjórn Palestínumanna, undir forystu Hamas-liða, yrði gerð ábyrg fyrir árásinni og lýst óvinveitt sem myndi auðvelda Ísraelsmönnum að réttlæta árás gegn heimastjórninni og fulltrúum hennar. Á fundinum var ákveðið að lýsa heimastjórnina ábyrga en árásir ekki heimilaðar. Hamas-liðar í heimastjórn Palestínumanna hafa ekki viljað fordæma árásina í gær en það hefur Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, gert. Í morgun sagði innanríkisráðherra í heimastjórninni að Palestínumenn mættu verja sig fyrir ágangi Ísraelsmanna með hvaða hætti. Ísraelar hafa hert stórskotaliðsárásir á norðurhluta Gaza-strandarinnar síðustu vikur. Þeir segja þær svar við fleiri flugskeytaárásum Palestínumanna á ísraelska bæi frá Gaza. Bandaríkjastjórn fordæmir árásina í gær og segir það hlutverk heimastjórnar Palestínumanna að koma í veg fyrir hryðjuverk. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær heimastjórnina til að fordæma sjálfsvígsárásir. Hann sagði kvartetinn svokallaða, Bandaríkjamenn og Rússa auk fulltrúa Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðann, ætla að funda um stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs í New York þann 9. maí næstkomandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira