Ætti Seðlabankinn að hætta að eltast við húsnæðisverð? 18. apríl 2006 13:45 MYND/E.Ól.
Fjármálaráðgjafi segir að verðbólgan væri undir markmiðum Seðlabankans ef bankinn hætti að eltast við húsnæðisverð í viðmiðunum sínum. Hann efast um að kauphækkanir myndu auka enn við verðbólguna. Hagstofan tilkynnti skömmu fyrir páska að verðbólgan í landinu væri orðin 5,5 prósent á ársgrundvelli. Á síðustu þremur mánuðum hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2 prósent, en samkvæmt Hagstofunni hafa verðhækkanir á bensíni og díselolíu mest áhrif á hækkunina en hækkun á húsnæðisverði og verði á nýjum bílum hefur einnig töluverð áhrif. Greiðslubyrði á ári af húsnæðisláni til eins árs upp á eina milljón króna við núverandi verðbólgu, og miðað við 4,15 prósenta vexti, er tæplega ein milljón 53 þúsund krónur. Greiðslubyrði af sama láni miðað við verðbólgumarkmið Seðlabankans, sem er 2,5 prósent, er rúmlega sextán þúsund krónum lægri. Greiðslubyrðin hækkar svo um sextán þúsund krónur fyrir hverja milljón krónur sem lánið hljóðar upp á. Ingólfur H. Ingólfsson, fjármálaráðgjafi Spar.is, segir að verðbólgan væri undir markmiðum Seðlabankans ef bankinn hætti að eltast við húsnæðisverð í viðmiðunum sínum. Hann segir að honum finnist undarlegt að bankinn skuli taka húsnæðisverð inn í neysluverðsvísitöluna, ólíkt öðrum OECD-þjóðum, m.a. vegna þess að húsnæði geti vart talist neysluvara. Og Ingólfur gefur lítið fyrir þær yfirlýsingar ráðamanna að kauphækkanir gætu leitt til enn hærri verðbólgu.
Fréttir Innlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira