66 urðu að endurgreiða tryggingafélögum 18. apríl 2006 12:45
66 ökumenn þurftu að greiða samanlagt tuttugu milljónir króna til tryggingarfélaganna á síðasta ári vegna tjóns sem þeir ollu í umferðinni.Sá ökumaður sem þurfti að greiða tryggingarfélagi hæsta upphæð vegna umferðarslyss mátti punga út einni komma átta milljón króna. Næstu tveir máttu greiða sautján hundruð þúsund krónur hvor um sig og alls máttu níu ökumenn greiða tryggingarfélögunum hálfa milljón eða meira.Tryggingafélögin geta krafið ökumenn um bætur ef þeir valda tjóni af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi og kveður endurkröfunefnd upp úr um réttmæti kröfunnar. Á síðasta ári kröfðust tryggingarfélögin greiðslu í sjötíu málum og voru 66 þeirra samþykkt.Flestir sem urðu að endurgreiða tryggingafélagi bætur urðu að gera það vegna ölvunar við akstur, alls 49. Tólf ollu tjóni þegar þeir voru réttindalausir í umferðinni, þrír ollu tjóni af ásetningi og þrír með glæfraakstri. Þá var einn undir áhrifum lyfja og því endurgreiðsluskyldur. Þetta er meiri tala en nemur fjölda mála en það skýrist af því að stundum liggja fleiri en ein ástæða að baki endurkröfu.Þrír af hverjum fjórum tjónvöldum sem verða að gera upp við tryggingafélag eru karlar og tveir af hverjum fimm voru 25 ára eða yngri.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Sjá meira