Heilbrigt fólk þarf ekki á listinni að halda 6. október 2006 15:00 Aleksandr Sokurov gerði tíu myndir á tímum gamla Sovét sem komust ekki í gegnum ritskoðun og því ekki fyrir augu almennings.
Rússneski kvikmyndaleikstjórinn Aleksandr Sokurov á að baki ófá meistaraverkin en hann hóf feril sinn fyrir margt löngu í gömlu Sovétríkjunum. Hann er einn gesta á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík og notar heimsóknina meðal annars til að skoða sig um á Íslandi og leita að tökustöðum. Ég hef áhuga á að taka mynd á Íslandi og mun skoða mig um hérna með það í huga, segir Sokurov. Mér skilst samt að Ísland sé eitt dýrasta land í heimi og það sé jafn dýrt að vera hér og í Tókýó eða New York þannig að ég hef sennilega ekkert efni á því að gera mynd hérna. Ég skoða samt landið með opnum hug enda vil ég þukla á öllu hvar sem ég kem og finna lyktina af grasinu. Stóðst ekki freistinguna Þrjár mynda Sokurovs, Rússneska örkin, Sólin og Lífsins harmaljóð, eru sýndar á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík og leikstjórinn er handhafi heiðursverðlauna hátíðarinnar fyrir ævistarf sitt í þágu kvikmyndalistarinnar. Það var þó fyrir hálfgerða tilviljun sem Sokurov endaði í kvikmyndagerð. Ég ætlaði að verða leikstjóri í leikhúsi og þá ekki síst útvarpsleikhúsi og hafði því engin áform um að læra hinar sjónrænu listir. Ég taldi útvarpsleikhúsið geta verið brú á milli almennings og alvöru bókmennta. Sokurov segist þó fyrst hafa viljað afla sér almennrar menntunar áður en hann færi að sérhæfa sig í einhverri listgrein þar sem listin á í hans huga að vera alþýðleg. Ég fór því í sögudeildina í háskólanum en til þess að hafa einhverja aura í vasanum fór ég að vinna sem aðstoðarmaður leikstjóra í sjónvarpi samhliða náminu. Sjónvarpið varð því fyrir mér þetta Adamsepli sem ég beit í, freistingin sem ég fékk ekki staðist. Í framhaldinu fór ég svo í kvikmyndanám. Þetta var einhver leið sem ekki var hægt að víkja út af eða snúa til baka. Sagði frá því sem fyrir augu bar Sokurov var 18 ára þegar hann gerði sín fyrstu verk á 8mm filmur en hann hóf feril sinn sem kvikmyndagerðarmaður á heimildarmyndum. Ég fjallaði um venjulegt fólk og sagði frá lífinu í kringum mig. Fyrstu heimildarmyndirnar mínar voru um verkamenn í bílaverksmiðju, konur sem ræktuðu hör á samyrkjubúi og uppgjafahermenn úr stríðinu. Þetta voru portrett af einstaklingum. Þetta var það sem ég hafði mestan áhuga á. Sokurov hefur verið nefndur arftaki landa sins Andreis Tarkovskí en með þeim tókst góð vinátta þó þeir hafi aldrei unnið saman. Ég fann ekki fyrir neinum sérstökum áhrifum frá þekktum kvikmyndagerðarmönnum þegar ég var að byrja. Ég bjó í lítilli borg og maður sá ekki mikið af myndum nema kannski helst eftir Tarkovskí og Ingmar Bergman. Maður mallaði bara í eigin sósu. Þetta var gott fyrir mig vegna þess að þegar ég fór svo að gera eitthvað sjálfur fyrir alvöru þá fann ég ekki áhrif neinna hvíla þungt á herðum mér. Fyrir utan stóra rithöfunda eins og Thomas Mann, Tolstoj, Zola og Dickens. Þeir höfðu frábær áhrif á mig og eiginlega má segja að allir mínir lærifeður hafi komið úr bókmenntunum.Lækningamáttur listarinnarSokurov segist ekki gera greinarmun á heimildarmyndum og leiknum myndum og segir þar fyrir utan að fall Sovétríkjanna hafi ekki breytt neinu um efnistök sín. Kjarninn í sköpunarverkinu er alltaf sá sami og það er enginn sérstakur munur á leikinni mynd og heimildarmynd. Málið er að búa til eitthvað sem stendur undir kröfum listarinnar. Ég trúi ekki á pólitískar myndir eða heimildarmyndir sem gerðar eru eftir uppskriftum blaðamennsku. Ég held að þar sé lítinn sannleik að finna. Ef við berum þetta saman við lænavísindin þá er heimildarmynd eins og samtalsmeðferð en leikin mynd eins og skurðaðgerð. En hvort sem maður kýs þá verður höfundurinn alltaf að setja sér eitthvert listrænt markmið. Kjarninn í sköpunarverkinu er svo alltaf sá sami þó byggingin sé breytileg.Læknisfræðilíking Sokurovs er ekki gripin úr lausu lofti þar sem hann segist líta á listina sem lækningatæki. Listin er eitt af því sem við höfum til að lækna manninn. Heilbrigður maður hefur lítið við list að gera en þegar eitthvað amar að þá þurfum við á listinni að halda.
Menning Mest lesið Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Lífið Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Lífið Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Lífið „Fataskápurinn minn gerir ekki ráð fyrir sól“ Tíska og hönnun Cosby Show-stjarna látin Lífið Heimsfræg lesbía á leið til landsins Lífið Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Lífið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Lífið Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Lífið Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ Lífið Fleiri fréttir Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Cosby Show-stjarna látin Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Heimsfræg lesbía á leið til landsins Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Ákváðu að vera um kyrrt á Englandi þegar Trump náði kjöri Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Sjá meira