Lífið

Nonni Quest vekur athygli ytra

Margrét og Nonni eru bæði í Make Up Store blaðinu sem er selt í yfir hundrað verslunum víðs vegar um heiminn.
Margrét og Nonni eru bæði í Make Up Store blaðinu sem er selt í yfir hundrað verslunum víðs vegar um heiminn.

Hárgreiðslumeistarinn Nonni Quest er í opnuviðtali í förðunarblaði sænska snyrtivöruframleiðandans Make Up Store. Hann fór ásamt Margréti R. Jónasdóttur, förðunarfræðingi og eiganda Make Up Store í Kringlunni, til Svíþjóðar í haust til að taka þátt í 10 ára afmælissýningu Make Up Store.

„Af því Make Up Store var að opna á Íslandi þá var Margréti boðið að taka þátt í þessarri sýningu og hún fékk mig til að fara með sér og sjá um hárið á fyrirsætunum í atriðinu sem hún sá um og það eru einmitt myndir af því atriði í blaðinu líka,” segir Nonni en einnig má sjá myndir í blaðinu frá opnun Make Up Store á Íslandi fyrir um tveimur mánuðum síðan.

„Það kom mér svolítið á óvart að þeir vildu taka viðtal við mig í blaðið en við vöktum athygli hjá fólkinu þarna úti sem fannst það svo kúl sem við vorum að gera, enda fengum við líka heilmikla umfjöllun í Expressen eftir sýninguna.”

Margrét R. Jónasdóttir, eigandi Make Up Store á Íslandi, er að vonum ánægð með athyglina sem Nonni og hún fá í Make Up Store blaðinu. „Blaðið er selt í öllum Make Up Store verslununum, sem eru yfir hundrað talsins út um allan heim,” segir Margrét. „Viðskiptavinir okkar kaupa blaðið en ekki síður fagfólk innan tískugeirans.“

Margrét segir verslunina hafa fengið frábærar viðtökur í Kringlunni. „Fólk er rosalega ánægt með vörurnar en núna fyrir jólin erum við með gjafabréf upp á vörur fyrir 5.400 krónur og með því fylgir einkakennsla í förðun í klukkustund auk þess sem búðin gefur gjöf með hverju gjafabréfi. Þessu er pakkað inn í voðalega fallegar umbúðir þannig að þetta er bara tilbúið undir jólatréð og alveg kjörið fyrir þá sem eru alltaf að flýta sér,” segir Margrét og hlær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.