Undurfögur og heillandi 14. desember 2006 17:15 Hljómfagur plata sem nær að hreyfa við ýmsum tilfinngum á tregafullan hátt. Stjörnur: 4
Skúli Sverrison er kannski ekki þekktasti tónlistarmaður þjóðarinnar en hann er svo sannarlega með þeim farsælustu. Samstarf við bæði Blonde Redhead og Laurie Anderson sanna það. Sería er fyrsta sólóbreiðskífa Skúla sem er gefin út hérlendis en hana er ákaflega erfitt að tengja við einhverja ákveðna tónlistarstefnu. Mætti þó kannski lýsa sem tregafullu avant-garde poppi. Platan er mest megnis án söngs og byggjast flest laganna í grunninn á bassa-, gítar og dóbróleik Skúla sem er reyndar fyrst og fremst bassaleikari. Lögin fá síðan ýmsar fléttur sem litglæða lögin og hvert einasta lag hefur sinn sjarma. Lögin sveiflast allt frá því að vera heltekin af harmi (Nineteen Centuries) yfir í lostafulla gælu (Her Searching Hands) en treginn er þó alltaf til staðar og gegnum gangandi út alla plötuna. Góðir gestir prýða plötuna og má þar helst nefna Jóhann Jóhannsson, Hilmar Jensson, Amedeo Pace (úr Blonde Redhead), Hildi Guðnadóttir og Laurie Anderson. Einn gestanna setur þó sinn svip á plötuna svo um munar en það er Ólöf Arnalds. Hún syngur texta sína við þrjú lög plötunnar; Geislar hennar, Sungið ég gæti og Vaktir þú og eru þau öll með sterkustu lögum plötunnar. Sérstaklega hið síðastnefnda sem er undurfagurt og uppfullt af ýmsum blæbrigðum sem hreyfa við ýmsum tilfinningum innra með manni. Söngur Ólafar er líka nánast himneskur og textar hennar passar einkar vel við (svo sannarlega tilhlökkunarefni fyrir frumburð Ólafar sem er væntanlegur snemma á næsta ári). Önnur áberandi sterk lög á plötunni fyrir utan þau sem áður hafa verið nefnd eru Binding Garden, One Night Of Swords og Sería. Ekki má heldur gleyma framlagi Anthony Burr sem hefur lengi unnið náið með Skúla og á mikið í hljómi plötunnar sem er ein sú hljómfegursta sem komið hefur út á þessu ári. Steinþór Helgi Arnsteinsson
Mest lesið Pamela slær á sögusagnirnar Lífið Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Fréttatía vikunnar: Friðlýsing, frumsýning og handtaka Lífið Nýupptekið grænmeti á Flúðum í dag og opnar garðyrkjustöðvar Lífið Hleypur 110 kílómetra á dag til að setja heimsmet Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Fleiri fréttir Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“