Lífið

Leikur dóttur Harrison Ford

Natalie Portman Leikur dóttur Harrisons Ford í fjórðu myndinni um Indiana Jones.
Natalie Portman Leikur dóttur Harrisons Ford í fjórðu myndinni um Indiana Jones. MYND/Reuters

Leikkonan unga Natalie Portman hefur fengið hlutverk í fjórðu og síðustu myndinni um Indiana Jones. Harrison Ford leikur hetjuna frægu en Portman mun leika dóttur hans.

Leikstjóri myndarinnar er George Lucas en hann og Natalie Portman eru vel kunnug síðan í Star Wars-myndunum, en hún lék í myndunum undir hans stjórn. Búið er að velja fleiri leikara í myndina, en Sean Connery mun leika föður Indiana Jones og Jake Gyllenhall kemur einnig við sögu í myndinni sem verður tekin upp á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×