4.431 undirskrift til stuðnings séra Sigfúsi 12. apríl 2006 17:02
Undirskriftir 4.431 íbúa í Reykjanesbæ voru afhentar dómsmálaráðherra fyrir luktum dyrum í dómsmálaráðuneytinu í dag. Fólkið krefst þess að ráðherra skipi séra Sigfús B. Ingvarsson í stöðu sóknarprests í Keflavíkursókn. Séra Sigfús B. Ingvason hefur verið annar presta í Keflavíkursókn í þrettán ár, ásamt séra Ólafi Oddi Jónssyni, sem lést fyrir áramót. Stuðningsmenn hans segja hann hafa þjónað af trúrækni og tryggð og sé mjög vinsæll meðal sóknarbarna, eins og berlega sjáist af fjölda sóknarbarna sem hafa skrifað sig á listann honum til stuðnings. Þegar búið var að fara yfir tvítekningar og platnöfn voru 4431 nafn á listanum, en um 5600 atkvæðisbær sóknarbörn í Keflavíkursókn, þ.e. tæp 80% atkvæða ef kemur til prestskosninga. Valnefnd, sem skipuð er af sóknarnefnd, ásamt vígslubiskupi, mæltu með öðrum presti í brauðið, séra Skúla S. Ólafssyni, sem hefur þjónað sem sóknarprestur á Ísafirði í forföllum skipaðs sóknarprests. Endanlegt ákvörðunarvald er hins vegar í höndum dómsmálaráðherra. Niðurstöðu í málinu er vænst fyrir lok mánaðarins, svo að nýr sóknarprestur geti tekið við þann 1. maí. Séra Sigfús þjónar áfram yfir páskana og vonuðust stuðningsmenn hans til þess að þurfa ekki að sjá á bak honum í mánaðarlok. Fjölmiðlum var meinaður aðgangur að sjálfri afhendingu undirskriftanna og fékk fréttamaður að dúsa niðri í andyri samkvæmt fyrirmælum Björns Bjarnasonar, ráðherra. Hann neitaði einnig að tjá sig um málið.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira