Átök í Ásatrúarfélaginu 21. október 2006 14:45 blótað af kappi Frá blóti Ásatrúarmanna. Haustblótið verður í kvöld, á Sögu, og verður þar væntanlega rífandi fjör.
Í fyrra seldi Óttar Ottósson, nú lögréttumaður, vini sínum húsnæði Ásatrúarfélagsins úti á Granda á einhverjar 90 milljónir. Eignin er nú metin á 400 milljónir króna, segir Torfi Geirmundsson, hárskerinn góðkunni við Hlemm. Hann hefur ákveðið að bjóða sig fram til stjórnar í Ásatrúarfélaginu. Torfi er, líkt og ýmsir aðrir innan félagsins, afar ósáttur við hvernig núverandi stjórn hefur haldið á málum. Segir reikninga ekki í lagi og upplausn í félaginu. Eins og þeir segja stjórnmálamennirnir: Margir hafa komið að máli við mig. Ég fer fram til stjórnar til að ná friði innan félagsins. Þarna hafa verið væringar. Og þessi sala er náttúrlega skandall. Viku áður en allsherjarþing fer fram er haldið haustblót ásatrúarmanna að venju. Í kvöld nánar tiltekið. Það er nú haldið á Sögu en ekki í eigin húsnæði félagsins, segir Torfi og lýst ekki vel á það. Torfi segir jafnframt ýmis verk fyrir höndum í þessu trúfélagi sem nú telur liðlega þúsund manns. Meðal annars það að sparka í rassinn á borgarstjóranum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni sem hefur dregið úr hófi að taka fyrstu skóflustunguna að Hofi sem til stendur að reisa um starfsemi félagsins í Öskjuhlíð. Torfi segir að þar við hliðina standi til að reisa búddatrúarhof og segir það ekki óskemmtilegt. Búddatrúarmenn hljóti að reynast afbragðs nágrannar. En Torfa lýst þeim mun verr á að Óttar lögréttumaður sitji áfram fyrir í fleti með sinn feril og ætlar því í stjórn sjálfur. Ekki náðist í Óttar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir en staðgengill lögréttumanns í stjórn er Egill Baldursson: Þetta er náttúrlega bara vitleysa. Eignin var seld á 95 milljónir að undangengnu mati þriggja virtra fasteignasala í borginni. Enginn þeirra mat eignina hærra en þetta og þar af leiðandi töldum við þetta gott og ásættanlegt verð, segir Egill. Hann talar jafnframt um að félagið hafi varla svo getað staðið undir rekstri á húsinu hvað þá að fara í endurbætur. Á síðasta allsherjarþingi var tekist á um sölu húseignarinnar en Egill segir óverulegan fjölda hafi sett sig gegn henni þó vel hafi heyrst í þeim sem settu sig á móti. Egill ætlar áfram að gefa kost á sér til stjórnarsetu sem og Óttar og vefsíðustjóri félagsins Garðar Guðnason. Ég fagna því að Torfi bjóði sig fram. Fagna hverju framboði sem kemur. Þetta eru lýðræðislegar kosningar, segir Egill sem var, þegar Fréttablaðið náði af honum tali, að búa sig undir blótið sem verður í kvöld og verður örugglega fjörugt ef af líkum lætur.
Menning Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Tónlist Fleiri fréttir „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Sjá meira