McCartney sagður ofbeldishneigður 19. október 2006 13:30 erfiður Skilnaður Paul McCartney er sagður hafa lamið Heather Mills á síðustu árum hjónabandsins en hann neitar öllum sökum.
Í skjölum sem breska götublaðið The Mirror komst yfir er greint frá því að Heather Mills haldi því fram að McCartney hafi verið drykkfelldur og ofbeldishneigður síðustu ár hjónabandsins. Samkvæmt frétt The Mirror á bítillinn fyrrverandi að hafa lamið Mills á meðan hún var ólétt, tekið hana hálstaki, hent í hana vínglasi og ýtt henni ofan í tómt baðkar. Mills segir ennfremur að McCartney hafi neytt áfengis ótæpilega og ólögleg vímuefni sem hafi orðið til þess að hann missti stjórn á skapi sínu með fyrrgreindum afleiðingum. Vinir tónlistarmannsins segja McCartney vera í öngum sínum yfir þessum ásökunum. „Hann neitar þessu með öllu og trúir því hreinlega ekki að hann skuli sakaður um eitthvað af þessu. Hann er öskureiður því hann vildi Mills aðeins vel,“ sagði vinur McCartney. Í málsskjölunum er greint frá árás sem á að hafa átt sér stað í Los Angeles árið 2002. Þá á Paul að hafa tekið um hálsinn á Mills og skellt henni upp á kaffiborð. Ári eftir þetta, þegar Mills gekk með dóttur þeirra Bea, á McCartney að hafa brjálast og ýtt henni ofan í baðkar. Í apríl síðastliðnum á McCartney síðan að hafa hellt yfir Mills rauðvíni, brotið glasið og skorið fyrirsætuna með glerbroti sem varð til þess að úr varð mjög stórt sár á olnboganum. McCartney á síðan að hafa þrýst Mills í hjólastól, farið með hana út fyrir og öskrað að hún skyldi biðjast afsökunar á framferði sínu gagnvart sér. Málið verður tekið fyrir á næsta ári en reiknað er með að skilnaðurinn geti orðið sá dýrasti í sögu Bretlands enda McCartney einn ríkasti maður landsins.
Menning Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlist Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira