Lífið

Gaultier fagnar 30 árum í bransanum

Vor/sumar 2007. Þessi silfurlitaði kjóll er úr nýjustu línu Gaultier og sýnir að karlinn hefur engu gleymt og heldur ótrauður áfram að hafa áhrif í tískuheiminum. Fyrirsætan er einnig óvanaleg að því leyti að hún er í eldri kantinum, öfugt við það sem venjan er á tískupöllum heimsins.

Franski tískuhönnuðurinn og frumkvöðullinn Jean Paul Gaultier fagnar 30 ára hönnunarafmæli sínu á þessu ári. Þessum tímamótum gerði Gaultier skil áður en tískusýning hans fyrir vor/sumar 2007 hófst á tískuvikunni í París á dögunum.

Gaultier ákvað að hverfa aftur til fyrri tíðar þar sem hann notaðist við gömul snið og færðu þau í nýjan búning. Oddhvössu brjóstin sem Madonna gerði fræg hér um árið, röndótta sjóliðaþemað og tjullpilsin vöknuðu aftur tl lífsins enda hefur Gaultier haft mikil áhrif á tískuna undanfarin 30 ár.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×

Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.