Styttist í öfgasýninguna 9. október 2006 13:30 Birgir Nielsen og Björgvin Rúnarsson eru komnir með umboðsmannasamning fyrir Extreme team í Evrópu.
Birgir Nielsen og Björgvin Rúnarsson flytja inn Extreme team, en þeir reka saman fyrirtækið 2B company. Extreme team skaust upp á stjörnuhimininn þegar liðsmenn sýndu í hálfleikjum í NBA-deildinni í Bandaríkjunum. Sýningarnar hér á landi verða tvær, en þær fara fram í Laugardalshöllinni 18. nóvember. „Þetta eru allt miklir íþróttamenn," sagði Birgir í samtali við Fréttablaðið. „Hingað koma brjálaðir loftfimleikamenn, strákar sem slam-dunka, eða troða körfuboltum í körfur eins og það heitir á íslensku. Svo eru þarna BMX-hjóla strákar, bestu breikarar Bandaríkjanna og gúmmímaður, sem getur farið úr öllum liðum sem fyrirfinnast í líkamanum." sagði Birgir. Undir herlegheitunum þeytir svo margverðlaunaður bandarískur plötusnúður skífum. Birgir sagðist búast við mikilli aðsókn á sýningarnar. „Já, miðasalan á miði.is er þegar hafin og gengur rosalega vel." Í fylgd með Extreme team verður líka minnsta körfuboltalið í heimi, Minihoops, en liðið skipa sex dvergar auk liðsstjóra í venjulegri stærð. „Þeir hafa ferðast út um allt, heimsótt barnaspítala og barist gegn einelti," sagði Birgir, en hann segir þá vera fyndnasta körfuboltalið í heimi. „Þeir eru truflaðir. Af fjögur hundruð leikjum hafa þeir tapað ellefu," sagði Birgir, en Minihoops eru bókaðir fimm ár fram í tímann. Enn er þó ekki komið á hreint hverjir munu mæta dvergunum í Laugardalshöllinni. „Ég skora bara hér með á kvennalandsliðið í körfubolta að taka slaginn," sagði Birgir kátur.
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira