Lífið

Sköpunarkraftur fyrr og nú

Sena úr sögunni um Fjalla-eyvind
Ný kvikmyndatónlist við sænsk-íslenska klassík.
Sena úr sögunni um Fjalla-eyvind Ný kvikmyndatónlist við sænsk-íslenska klassík.

Tónlistarmaðurinn Benedikt Hermann Hermannsson, Benni Hemm Hemm, hefur samið nýja tónlist við stórvirki sænska leikstjórans Victor Sjöstrom, Berg-Ejvind och hans hustru, sem hann byggir á sögu leikriti Jóhanns Sigurjónssar um útlegumanninn Fjalla-Eyvind. Hljómsveit Benna Hemm Hemm mun flytja tónlistina á tvennum tónleikum í Tjarnarbíói í kvöld og annað kvöld.

Victor Sjöström er einn virtasti leikstjóri Svía frá upphafi en myndina gerði hann árið 1918. Sögusvið hennar er á Íslandi og segir þar af sambandi Höllu og Eyvindar þegar hann kemur til vinnu á bænum þar sem Halla býr og þau fella hugi saman. Heimilisfólki ber kennsl á Eyvind því hann er þekktur þjófur og þá flýja skötuhjúin til fjalla. Leikrit Jóhanns naut mikillar hylli bæði hér á landi og í Skanindavíu.

Benni Hemm Hemm var valin „bjartasta vonin“ á Íslensku tónlistarverðlaunum í fyrra. Fyrsta plata sveitarinnar var einnig útnefnd besta plata ársins í flokknum ýmist tónlist. Þess fyrir utan var hún ofarlega á árslitum flestra tónlistargagnrýnenda í lok síðasta árs, var vinsæl í útvarpi og seldist vel. Platan kom út í Japan snemma á þessu ári, og er nýkomin út í Evrópu og Bandaríkjunum. Von er á annarri plötu Benna Hemm Hemm hér á landi fyrir lok ársins.

Tónleikarnir fara fram í Tjarnarbíói og hefjast kl. 20.30. Miðasala fer fram á www.midi.is, www.filmfest.is og á Thorvaldsen Bar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.