Lífið

Fortíðin gerð upp í ljóðum

Bjarni Bernharður Yrkir og málar á víxl. Hann var að senda frá sér sína tólftu ljóðabók og vinnur jafnframt að skáldævisögu sinni.
Bjarni Bernharður Yrkir og málar á víxl. Hann var að senda frá sér sína tólftu ljóðabók og vinnur jafnframt að skáldævisögu sinni.

Bjarni Bernharður, ljóðskáld og myndlistarmaður, hefur sent frá sér ljóðabókina Vélgöltinn þar sem hann gerir upp við örlagaríka atburði úr fortíð sinni. Þetta er tólfta ljóðabók Bjarna sem hefur verið afkastamikill á síðustu árum. „Ég hef gefið út eina bók á ári frá árinu 2002,“ segir Bjarni.

„Ég hef verið að gera líf mitt upp í ljóðum og sé fram á að sá hringur fari að lokast,“ segir Bjarni sem telur sig þó örugglega þurfa tvær bækur til viðbótar áður en hann lýkur þessu uppgjöri.

Bjarni hyggst einnig gera lífi sínu betri skil í skáldævisögu sem hann segist vera kominn vel á veg með. „Þetta er skáldsaga sem byggir á sjálfsævisögulegum grunni,“ segir Bjarni sem eyðir drjúgum tíma í skriftir á milli þess sem hann sinnir myndlistinni.

„Ég er nú svo lánsamur að þetta hefur ekkert þvælst hvort fyrir öðru og á meðan ég sinni ritstörfum læt ég málverkin eiga sig og öfugt.“ Bjarni er með málverkasýningu í gangi í 12 Tónum þessa dagana en annars eiga ljóðin hug hans allan um þessar mundir.

„Ég er alltaf að semja ljóð en svo er ég líka að ganga frá ljóðasafni með úrvali úr síðustu tíu bókum mínum. Elstu ljóðin mín hafa mörg hver verið illfáanleg lengi og ég held að helst megi finna þau í fornbókabúðinni hans Braga Kristjónssonar.“

Bjarni er vanur því að selja ljóð sín í Austurstræti og það verður engin breyting þar á þannig að fólk getur nálgast Vélgöltinn þar, auk þess sem bókin verður seld í bókaverslunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.