Lífið

Ævarandi rómantík

Brúðhjónin Guðrún Ragnars og Geir Borg ganga í það heilaga
Í Minjasafni Akureyrar má kynnast brúðarsiðum fyrr og nú en sýningin „Ef þú giftist“ hefur nú verið framlengd.
Brúðhjónin Guðrún Ragnars og Geir Borg ganga í það heilaga Í Minjasafni Akureyrar má kynnast brúðarsiðum fyrr og nú en sýningin „Ef þú giftist“ hefur nú verið framlengd. Mynd/Hallgrímur einarsson

Sýningin „Ef þú giftist“, um brúðkaup og brúðkaupssiði, sem nú stendur yfir í Minjasafni Akureyrar, hefur verið framlengd til 19. nóvember vegna góðrar aðsóknar.

Efni sýningarinnar byggir á brúðkaupssýningunni „Í eina sæng, íslenskir brúðkaupssiðir“, sem sett var upp í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands árið 2004. Fjallað er um trúlofunar- og brúðkaupssiði fyrr og nú, veislur, gjafir og klæðnað, og ungbarnaumönnun. Auk þess spannar hún þróun klæðnaðar og ljósmyndahefðar frá því á seinni hluta 19. aldar fram til dagsins í dag. Sýningin er samvinnuverkefni Minjasafnsins á Akureyri og Þjóðminjasafns Íslands. Önnur söfn, fjölmargir einstaklingar og starfandi ljósmyndarar á Akureyri hafa einnig lagt hönd á plóginn til að skapa þessa skemmtilegu og fræðandi sýningu, til dæmis með því að lána þangað muni og myndir.

Safnið verður opið allar helgar frá 14-16 fram til 19. nóvember og eftir samkomulagi. Við sýningarlok verður dregið úr veglegum vinningum sem fjöldamörg fyrirtæki hafa látið safninu í té vegna lukkupottsins „Heppin/n í ástum“. Í honum eru nöfn þeirra sem leigt hafa Minjasafnskirkjuna og Laufáskirkju til athafna árið 2006.

Minjasafn Akureyrar er staðsett við Aðalstræti 58 en nánari upplýsingar um sýninguna má finna á www.akmus.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.