Lífið

Reynir í vangadansi við Baug

Baugur stendur á bakvið Hjálm, útgáfufyrirtæki nýs tímarits Reynis.
Baugur stendur á bakvið Hjálm, útgáfufyrirtæki nýs tímarits Reynis.

„Ég vann á Fréttablaðinu í tíð Baugs og geng áhyggjulaus til þessa verks. Aldrei var reynt að hafa áhrif á skrif mín þar. Beinlínis móðgun ef menn halda því fram að ég sé eitthvert handbendi. Á endanum er allt sem skiptir máli mín fagmennska og hvað ég geri í blaðamennsku," segir Reynir Traustason ritstjóri.

Reynir og hans lið hafa unnið að útgáfu tímaritsins Ísafoldar um hríð en stefnt er að því að blaðið komi út í byrjun nóvember. Leynd hefur verið um hvert eignarhaldið er en helsti eigandi tímaritsins fyrirtæki sem heitir Hjálmur og er alfarið í eigu Baugs. Án þess að Reynir vilji tala fyrir þá aðila segir hann þá sjá fyrir sér vaxtarmöguleika í tímaritaútgáfu. Og þeim hafi líkað vel það Mannlíf sem Reynir stýrði hjá Fróða.

„Og það gleður mig auðvitað að þeir sjái fyrir sér að þessi áhöfn geti skilað vönduðu tímariti," segir Reynir og telur upp son sinn Jón Trausta, Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur og Ragnar Petersen. Frumhönnun blaðsins var gerð í London en sá sem hannar eftirleiðis er Ólafur Guðlaugsson.

Meðal þeirra sem rita í Ísafold eru Illugi Jökulsson, Egill Helgason, Jón Viðar Jónsson, Össur Skarphéðinsson, Linda Pé, Geir R. Andersen, Páll Ásgeir Ásgeirsson og Jóhann Hauksson.

Eignarhaldið vekur óneitanlega athygli en Baugur er helsti eigandi 365 miðla. Reynir segir það ekki koma sér við. „Ég get ekki haft áhyggjur af því þegar sætasta stelpan á ballinu vill dansa við mann. Velti ekki fyrir mér af hverju, hvort hún er að gera einhvern afbrýðissaman eða hvað - maður bara dansar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.