Ekkert sögulegt afrek 10. ágúst 2006 17:30 :Niðurstaða: The Sentinel er ágætt dæmi um það þegar tveir leikarar fá hlutverk sem þeir kunna upp á hár og skila því af sér eins og að drekka vatn. Kvikmyndin fer vart í sögubækurnar en tekst að halda áhorfandanum við efnið lengst af.
Embætti forseta Bandaríkjanna er án nokkurs vafa eitt það valdamesta í heimi og af þeim sökum er fjölmörgum í nöp við þann sem sinnir því hlutverki hverju sinni enda hafa Bandaríkin verið ýmist tákn frelsis eða heimsvaldastefnu í heimssögunni. Öryggisráðstafanir í kringum ferðir forsetans eru þær mestu í heiminum og hann má varla færa sig um set án þess að það sé skipulagt í þaula af þrautþjálfuðum leyniþjónustumönnum. Tryggð við embættið og ríkið er einn helsti máttarstólpi CIA enda ætti svikari auðvelt með að færa hvers kyns óþjóðalýð líf forsetans á silfurfati. Í The Sentinel er þessi umdeilda stofnun (sem CIA vissulega er) í forgrunni. Aðalpersónan, Pete Garrison, er reynslubolti sem hikar ekki við að beygja reglurnar til að vernda þá sem landinu stjórna. Þrátt fyrir að njóta virðingar meðal samstarfsmanna sinna hefur honum ekki tekist að feta sig upp metorðastigann. Garrison gegnir því hlutverki að gæta forsetafrúarinnar, Söruh Ballentine, og virðist hafa tekið hlutverk sitt fullbókstaflega því þau tvö eiga í leynilegu ástarsambandi. Þegar gamall vinur Garrisons er drepinn kviknar grunur um að eitthvað sé ekki með felldu innan CIA og gamall nemi Garrisons, David Breckinridge, er fenginn til að rannsaka málið. Garrison og Breckinridge hafa eldað grátt silfur saman eftir að sá síðastnefndi sakaði lærimeistara sinn um að halda við eiginkonu sína. Þegar Breckinridge hefur rannsókn sína berast böndin að Garrison og allt bendir til þess að hann sé höfuðpaurinn á bak við morðtilraun á forseta Bandaríkjanna. Breckinridge fær því þarna kærkomið tækifæri til að klekkja á fjandmanni sínum. Óneitanlega hlýtur að vera erfitt fyrir kvikmyndagerðarmann að búa til eitthvað nýtt í kringum hina formföstu leyniþjónustu Bandaríkjanna, leyndin í kringum hana er enda sterkasta vopn CIA. The Sentinel er heldur ekkert að rembast við að feta ótroðnar slóðir heldur reynir að nýta sér allt það góða sem hefur verið gert. Garrison á auðvelt með að vinna hug og hjörtu áhorfandans með herkænsku sinni en hlutverkið er klæðskerasniðið fyrir Michael Douglas enda hefur hann leikið hina rosknu týpu oftar en einu sinni. Arftaki hans á hvíta tjaldinu, Kiefer Sutherland, er einnig í kunnuglegu hlutverki sem reglubókarmaðurinn David Breckinridge. Sutherland er einfaldlega það mikill gæðaleikari að honum getur ekki brugðist bogalistin. Eva Longoria lætur hins vegar lítið fyrir sér fara enda er hlutverk hennar aðallega að spranga um í níðþröngri svartri dragt og hlusta á viðreynslusetningar frá samstarfsfélögum sínum. The Sentinel byrjar frekar hægt en vinnur vel á. Leikstjórinn Clark Johnson er duglegur að blanda fréttamyndum og grafískum útfærslum af morðhótunum við kvikmyndina sem heppnast í flestum tilvikum ágætlega og tónlist Chris Beck skapar rétta andrúmsloftið. Kvikmyndin er langt frá því að vera söguleg í flokki leyniþjónustumynda en tekst vel upp með að halda áhorfandanum við efnið og sér til þess að enginn fer úthvíldur út úr kvikmyndahúsinu.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira