Lífið

Svikari innan CIA

Garrison Á að vernda forsetafrúna þegar besti vinur hans er drepinn. Ekki er allt sem sýnist og það virðist vera svikari innan CIA.
Garrison Á að vernda forsetafrúna þegar besti vinur hans er drepinn. Ekki er allt sem sýnist og það virðist vera svikari innan CIA.

Pete Garrison er vel metinn leyniþjónustumaður hjá CIA sem bjargaði lífi forseta Bandaríkjanna fyrir tuttugu árum. Líf Garrisons er í föstum skorðum og hann hefur fengið það hlutverk að vernda forsetafrúna. Kvöld eitt fær hann símhringingu frá vini sínum, Merriweather, sem segist þurfa deila með honum leyndarmáli en áður en Garrison tekst að hafa upp á vini sínum er Merriweather drepinn. Allt lítur út fyrir að morðinginn sé innanbúðarmaður en það hefur ekki gerst í 141 árs sögu CIA.

Fyrrum lærisveini Garrisons, David Breckinridge, er falið að rannsaka málið en þeir tveir hafa eldað grátt silfur saman eftir að Garrison sakaði Breckinridge um að halda við fyrrverandi eiginkonu sína, hina eitilhörðu Jill Maroon. Þau þrjú verða þó að gleyma öllu því sem á undan er gengið til að komast til botns í málinu sem gæti snert árás á forsetann sjálfan.

Þau Michael Douglas, Kiefer Sutherland og Eva Longoria leika aðalhlutverkin í The Sentinel en leikstjóri er Clark Johnson sem hefur meðal annars leikstýrt nokkrum þáttum af hinni vinsælu sjónvarpsþáttaröð The Shield. Bæði Douglas og Sutherland hafa verið lengi að á hvíta tjaldinu en sá síðastnefndi gekk í endurnýjun lífdaga þegar sjónvarpsþættirnir 24 slógu eftirminnilega í gegn. Eva Longoria hefur smám saman verið að fikra sig upp á stjörnuhimininn með frammistöðu sinni í Aðþrengdum eiginkonum sem hin ákaflega lausláta Gabrielle Solis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.