Byrjuðu á sveitaballi 27. júlí 2006 13:15 Hljómsveitin Æla gaf út fyrstu plötu sína fyrir skemmstu. Frá vinstri eru Ævar gítarleikari, Haffi trommari, Sveinn bassaleikari og Halli Valli söngvari. MYND/Hrönn
Hljómsveitin Æla sendi frá sér fyrstu plötu sína fyrir skemmstu. Platan ber nafnið "Sýnið tillitssemi, ég frávik," og er gefin út af sjálfum Rúnari Júlíussyni í Geimsteini. Það er kannski ekki skrýtið enda eru meðlimir Ælu úr Keflavík og Sandgerði. "Æla hefur starfað í þrjú ár með hléum. Bandið var stofnað til að spila í hléi á sjómannadagsballi með hljómsveitinni Spútnik. Okkur var boðinn kassi af bjór og sömdum því fimm lög fyrir þetta. Það voru fleiri að dansa hjá okkur en Spútnik," segir Sveinn Helgi Halldórsson, bassaleikari Ælu. Hljómsveitin spilar pönkskotið rokk og hefur verið líkt við The Rapturee og Purrk Pillnikk meðal annarra. Plata Ælu var tekin upp "læv" á tveimur dögum í litlu herbergi í Keflavík. Sveinn segir að þessir tveir dagar hafi bæði einkennst af fylleríi og þynnku. "Það sem þú heyrir er það sem við spiluðum. Við vildum ná spilagleðinni sem einkennir bandið og það var geggjað sánd í þessu herbergi." Aðspurður segir Sveinn að stefnan sé nú að spila á eins mörgum tónleikum og hægt er á næstunni. Þeir hafi svo heilmikinn áhuga á því að fara til útlanda og spila. Eitt lag þeirra hefur þegar verið gefið út á sjötommu hjá litlu plötufyrirtæki í Englandi. Í dag og kvöld gefst svo frábært tækifæri á að berja Ælu augum því sveitin leikur á tvennum tónleikum. Þeir fyrri eru í Smekkleysubúðinni á Laugavegi 59 klukkan 17.00. Sveinn segir að Æla ætli þá að leika 20 mínútna djassverksspuna. Klukkan 21.30 leikur Æla svo á tónleikum á Café Amsterdam ásamt keflvísku sveitinni Koju og reykvísku sveitinni Weapons. 500 krónur kostar inn á þá tónleika.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira