Lífið

Hasselhoff opnar sig

David Hasselhoff varð frægur fyrir Baywatch þættina en gellurnar í þáttunum stálu þó athyglinni frá leikaranum.
David Hasselhoff varð frægur fyrir Baywatch þættina en gellurnar í þáttunum stálu þó athyglinni frá leikaranum.
Söngleikur um líf Baywatch hetjunnar David Hasselhoff er nú í bígerð en hvatamaður söngleiksins er enginn annar en hann sjálfur. Söngleikurinn mun segja frá lífi og starfi leikarans sem nú er 54 ára en hann hefur glímt við alkóhólisma lengi. Ég er að gera innilega sýningu um líf mitt og mistökin sem ég hef gert. Þetta hljómar eins og lélegur brandari en þetta verður virkilega góð sýning, sagði leikarinn við bandarískt tímarit á dögunum. Söngleikurinn er skrifaður af sama fólki og gerði sýningu Bette Midler og framleitt af fólkinu sem gerði Chicago í London.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.