IBM hjá 4AD og 12 Tónum í haust 26. júlí 2006 11:30 Tónlistin úr IMB 1401, a users manual kemur út í haust. MYND/sigurður jökull ólafsson
Dansverkið IBM 1401, a users manual eftir Ernu Ómarsdóttur dansara og Jóhann Jóhannsson tónskáld verður sýnt í sextugasta sinn í dag sem hluti af danshátíð sem fram fer í ítölsku borginni Drodesera. Verkið hefur hlotið frádæma undirtektir víða um Evrópu en það var frumsýnt í september árið 2002 og hefur það þegar verið flutt í yfir 40 borgum. Að sögn Jóhanns eru þau Erna að hefja nýja sýningartörn á verkinu sem mun standa fram á haustið en þá er einnig væntanlegur hljómdiskur með tónlistinni úr verkinu. Verkið hefur verið í stöðugri þróun allt frá frumsýningu. Strúktúrinn eða ramminn helst en bæði dansparturinn og tónlistin hefur tekið breytingum. Það er alltaf eitthvað nýtt að bætast við en nú fjórum árum síðar er það samt komið í nokkuð endanlegt form. Núna erum við til dæmis að frumsýna verkið með alveg nýrri útgáfu af tónlist, útskýrir hann. Jóhann hefur endurútsett músíkina og bætt við hana svo úr er orðið sjálfstætt verk sem að hans sögn var ávallt ætlunin að gera enda semur hann sín verk með útgáfu í huga. Verkið er nú útsett fyrir 60 manna strengjasveit sem Jóhann tók upp í Prag á síðasta ári en platan mun koma út hjá hinu virta útgáfufyrirtæki 4AD í Bretlandi. Þeir höfðu samband við mig akkúrat á réttum tíma. Ég hafði í hyggju að taka upp plötuna en þetta var dálítið dýrt og mun stærra verkefni en ég hef gert áður og mig vantaði einmitt góðan bakhjarl. Það sakar ekki að þeir eru mikil áhugamenn um tónlistina mína. Diskurinn mun jafnframt koma út hjá útgáfunni 12 Tónum hér heima. Erna og Jóhann sýna einnig nýtt verk á danshátíðinni sem nefnist The Mysteries of Love en það var frumsýnt fyrr í vor. Í því verki vinna þau með dansaranum Margréti Söru Guðjónsdóttur og tónlistarmönnunum Flosa Þorgeirssyni og Valdimar Jóhannssyni. Það er spurning hvernig viðtökurnar á því verða. Þetta er rétt að fara í gang en sýningarnar byrja vel og verkið hefur fengið góðar undirtektir. Vonandi verður það jafn langlíft og IMB en það er erfitt að meta það svona snemma, segir Jóhann.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira