Fjölskylduhefð að halda partí í Viðey 22. júlí 2006 13:00 Ægir og Gísli Eysteinssynir Bræðurnir standa að Viðeyjarpartíinu víðfræga, en á myndina vantar yngsta bróðurinn, Yngva, sem mun eflaust halda í hefðina næstu árin.
Fjölskylduhefðir eru af ýmsum toga en bræðurnir Ægir og Gísli Eysteinssynir fara ótroðnar slóðir. Í kvöld halda þeir stórt og mikið Viðeyjarpartí fyrir vini og vandamenn sjötta árið í röð. „Fjölskylda okkar hefur rekið Viðeyjarferjuna undanfarin þrettán ár. Eitt sumarið datt okkur bræðrum í hug að halda gott partí í Viðey fyrir vinina og það tókst svo vel að ákveðið var að halda því áfram,“ segir Ægir Þór Eysteinsson, sem er elstur þeirra bræðra. Í fyrsta partíið mættu ríflega sextíu manns en síðustu tvö ár hafa vel yfir tvö hundruð manns látið sjá sig. „Þegar við vorum farnir að sjá alls konar jeppa og gospabba í partíinu sem við könnuðumst ekkert við ákváðum við að tímabært væri að fara að minnka við okkur aftur. Þess vegna ætlum við að vera strangir í ár og hleypa bara æskilegum aðilum í teitið. Við búumst við svona 150 velvöldum hausum í það heila,“ segir Ægir Þór. Vatnaskil verða í sögu Viðeyjarpartísins í ár því Ægir býst við að draga sig í hlé frá partíundirbúninginum fljótlega og að yngsti bróðirinn muni þá taka við kyndlinum. „Það er farið að slá í kallinn, maður er að verða þrítugur á næsta ári og svona. En Yngvi Þórir, sem er átján ára, kemur þá bara sterkur inn. Vinir Gísla geta hugsað sér gott til glóðarinnar þá,“ segir Ægir Þór, og á þá við miðbróðurinn sem er 25 ára. „Það hefur reyndar ekki verið vandamál fyrir skonsur að fá aðgang í partíið í gegnum tíðina,“ segir hann og brosir. Partíin eru haldin í Viðeyjarnaustinu í eyjunni og hefur stemningin verið með eindæmum góð í gegnum árin að sögn þeirra bræðra. „Til að hafa þetta sem einfaldast höfum við boðið upp á skemmtilega rokktónlist en fólkið hefur sjálft komið með djús,“ segir Ægir. Hefð er fyrir því að teitið sé haldið síðustu vikuna fyrir verslunarmannahelgi en í ár var brugðið út af þeirri venju. „Vegna opinberar heimsóknar Andy Kadlec, hins bandaríska og tilfinningaríka vinar okkar, til landsins, var ákveðið að flýta partíinu um viku svo hann geti faðmað kollega sína og vini í Viðey.“
Menning Mest lesið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Beckham á spítala Lífið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Menning Fleiri fréttir Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Sjá meira