Rokkið færist á Amsterdam 19. júlí 2006 08:30 Gaukurinn Sigurður Hólm og félagar eru hættir að reka Gauk á Stöng.
Talsverðar sviptingar hafa orðið í tónleikaheiminum í Reykjavík að undanförnu. Síðustu misserin hafa þrír staðir verið helsti vettvangur tónleika á virkum dögum; Grand rokk, Gaukur á Stöng og Nasa. Nú ber svo við að efri hæðinni á Grand rokk hefur verið lokað og óvíst hvort þar verði áfram tónleikar. Gaukurinn hefur verið lokaður undanfarið og ekki er vitað hvenær hann verður opnaður aftur. Nasa er það stór staður að ómögulegt er fyrir flestar hljómsveitir að fylla staðinn. Af þessum sökum hefur nýr staður sprottið upp sem aðaltónleikastaðurinn í bænum. Þetta er Café Amsterdam, sem hingað til hefur helst verið þekktur sem harður djammstaður um helgar. „Húsið hefur staðið ónotað fimm daga í viku svo við fögnum því að reykvískir rokkarar vilji spila hjá okkur,“ segir Ari Schröder, veitingamaður á Café Amsterdam. Tónleikaröð Smekkleysu og Reykjavík Grapevine hefur verið á fimmtudagskvöldum á Amsterdam frá því í byrjun júní og verður út sumarið. Síðasta föstudagskvöld voru sömuleiðis haldnir rokktónleikar á Amsterdam svo þróunin virðist vera í þá átt að tónleikum muni fjölga þar á næstunni. „Þessir rokkarar hafa alltaf verið að spila á sömu stöðum og vildu skipta um umhverfi. Við höfum hingað til ekki lagt okkur fram um að vera með rokkið, en eins og ég hef alltaf sagt er öllum velkomið að koma til okkar,“ segir Ari. Hann fagnar sérstaklega tónleikahaldi á virkum kvöldum en segir einnig lítið mál að hljómsveitir spili þar fyrri hluta kvölds um helgar. Ástæða þess sé sú að mesta traffíkin af fastagestum Amsterdam komi seinni part nætur um helgar. Þorsteinn Þórsteinsson, veitingamaður á Grand rokk, segir að verið sé að vinna að endurbótum á efri hæð staðarins. Framkvæmdum lýkur 12. ágúst en ekki hefur verið ákveðið hvort haldið verði áfram með rokktónleika á staðnum. Þorsteinn segir að Airwaves-hátíðin fái vissulega sinn sess þar í október en ekki liggi fyrir hvað verði eftir það. Gaukurinn hefur verið lokaður síðustu vikuna og samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er staðurinn til sölu. Það er því ljóst að gat hefur myndast á markaðnum, enda hefur það verið algengt að tvennir eða þrennir tónleikar hafi verið haldnir í viku hið minnsta.
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Fleiri fréttir „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Sjá meira