Strákarnir okkar til Bandaríkjanna 19. júlí 2006 12:00 Ánægður með strákanna Júlíus Kemp getur brosað útí annað þessa dagana því kvikmyndin Strákarnir okkar er á leið í ferðalag um Evrópu.
Kvikmyndin Strákarnir okkar verður frumsýnd í Frakklandi í dag en hún er nú að hefja ferðalag um Evrópu þar sem áætlaðar eru sýningar í Belgíu, Hollandi, Spáni, Noreg og Þýskalandi. „Myndin verður sýnd í fimmtán kvikmyndahúsum í Frakklandi og sex borgum í Þýskalandi,“ segir Júlíus Kemp, aðalframleiðandi myndarinnar hjá Kvikmyndafélagi Íslands. Stærsti sigur myndarinnar er hins vegar dreifing í Bandaríkjunum á næsta ári en ekki er ljóst í hversu mörgum kvikmyndahúsum hún verður sýnd þar. Samningar um dreifingu á myndinni náðust á kvikmyndahátíðinni í Berlín en svo var gengið frá þeim á Cannes. Júlíus var að vonum ánægður með þessa dreifingu og sagði þetta allt vera á áætlun. „Við erum mjög sáttir með þessar viðtökur,“ bætir hann við. Fyrir rétt um ári greindi Fréttablaðið frá því að breskir aðilar hyggðust endurgera myndina á ensku en Júlíus hafði ekkert heyrt neitt meira af því. „Það þarf ekkert að vera að það sé dottið upp fyrir enda geta slík verkefni tekið allt að fimm árum,“ útskýrir hann. Kvikmyndafélag Íslands framleiðir kvikmyndina Astrópíu en tökur standa yfir í Hafnarfirði um þessar mundir. Þar fer fegurðardrottningin Ragnhildur Steinunn með hlutverk stúlku sem neyðist til að vinna fyrir sér eftir að kærastanum hennar er hent í steininn. Gunnar Björn Guðmundsson er leikstjóri myndarinnar en með önnur hlutverk fara þeir Ómar Örn Hauksson og Snorri Engilbertsson. „Tökurnar ganga mjög vel en við erum um það bil hálfnaðir,“ segir Júlíus sem reiknar með að þeim verði lokið í byrjun ágúst.
Menning Mest lesið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Lífið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Fleiri fréttir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Sjá meira