Innilegt samband við stein 19. júlí 2006 11:00 Smásagnasafn fær ágætar viðtökur Rithöfundurinn Haruki Murakami.
Nýjasta smásagnasafn japanska rithöfundarins Haruki Murakami hefur fengið ágætar viðtökur gagnrýnenda en bókin Blind Willow, Sleeping Woman geymir 26 sögur Murakamis sem skrifaðar eru á undanförum 30 árum. Gagnrýnanda Sunday Times verður tíðrætt um annarleikann í sögum Murakamis en það höfundareinkenni hans mótaðist snemma á ritferli hans. Margar af sögunum hverfast um minningar og óstöðugar sjálfsmyndir en annarleikinn birtist á ótal vegu, eiginkona teiknara deyr og skilur hann eftir með minningar sem eru aðeins skuggar af skuggum og fólk sem á innilegra samband við steina, drauma og vindinn heldur en aðrar manneskjur. Gagnrýnandi Sunday Times segir að myndlíkingar Murakamis séu heillandi en bendir á að margar ljóðrænar myndir haldi ekki nógu vel og að skrifin séu of upptekin af sjálfum sér. Í dómi um bókina er vitnað til orða höfundarins sem líkir smásagnagerð sinni við garðrækt en skáldsagnagerðinni við skógrækt en gagnrýnandinn klykkir út með því að litlar exótískar plöntur lifi ekki alltaf af flutninga. Í skrifum sínum um bókina áréttar gagnrýnandi The Guardian að sögur Murakamis séu töfrandi en súrrealismi höfundarins geti orðið þreytandi til lengdar. Smásögur hans séu jafn snilldarlegar og skáldsögurnar en í smásögunum sé meira jafnvægi. Allar sögurnar í safninu beri vott um annarleikann sem höfundurinn er þekktur fyrir en í smásögunum sé tilfinning fyrir byggingu skýrari. Þær kalli fram það besta hjá höfundinum og því sé hann ekki aðeins költ-fígúra heldur fyrsta flokks smásagnahöfundur.
Menning Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Sjá meira