Ný dansmynd unnin í Svíþjóð 17. júlí 2006 11:30 Dansmyndin. Another sem tekin var upp í Tartu fangelsinu í Eistlandi "Verkið snýst um sambönd og spurninguna um að taka ábyrgð á eigin frelsi"
Dansarinn og danshöfundurinn Helena Jónsdóttir er á leið til Svíþjóðar að vinna að dansverki fyrir sjónvarp í samstarfi við vel þekkta listamenn þar í landi. Helena hefur unnið að fjölda dansverka en flest þeirra hefur hún skrifað sjálf og leikstýrt, hvort sem það fyrir sjónvarp, tónlistarmyndbönd eða svið. Verkefnið í Svíþjóð vinnur hún ásamt þremur Svíum sem allir eru vel þekktir á sínu sviði í heimalandinu. Leikarinn Lars Bethke leikur aðalhlutverkið í dansverkinu, rithöfundurinn Irena Kraus skrifar handritið og Helena sér um leikstjórn og danshönnun. Að sögn Helenu mun hópurinn vinna ásamt tökuliði að kynningarefni myndarinnar í Stokkhólmi en tökur á myndinni sjálfri, sem verður 16 mínútur að lengd, hefjast í haust. "Það er gífurlega spennandi að vinna með þessu fólki enda er um mikla listamenn að ræða. Leikarinn sem um ræðir hefur leikið í fjölda mynda í heimalandi sínu og Irena Kraus skrifað fjölda leikrita fyrir útvarp, en hún er hvað þekktust fyrir að vinna sem hægri hönd Mats Eek, sem er einn þekktasti danshöfundur Svía." Á síðasta ári vann Helena að dansverkinu Another með Eistneska sjónvarpinu en það var tekið upp í Tartu fangelsinu sem er fyrsta sinnar tegundar í landinu. "Fangelsið var opnað árið 2002 og geymir 800 fanga en það sem veitti mér innblástur að hluta er sú staðreynd að síðan fangelsið opnaði hafa fjögur náin samband myndast milli fanga og fangavarða. Þrátt fyrir rammgirta steinsteypta veggi og einangrun, snýst verkið um sambönd, raunverulegar tilfinningar og spurninguna um að taka ábyrgð á okkar eigin frelsi." Fyrir utan eistneska sjónvarpið hefur dansverkið Another einnig verið sýnt víða annars staðar, samanber norska, sænska, danska og þýska ríkissjónvarpinu, auk þess sem sjónvarpstöðin Arte kaus verkið sem bestu dansmynd árið 2005. "Another hefur hlotið góðar viðtökur en í Svíþjóð fékk hún 200 þúsund manna áhorf þrátt fyrir að hún var ekki auglýst sérstaklega. Leikarinn í myndinni sem er eistneskur, heitir Mait Malmsten en hann er eins og Ingvar Sigurðsson okkar Íslendinga, sem ég ber mikla virðingu fyrir."
Menning Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Unnur Borg og Gugga saman í paradís Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira