Ókeypis ljóð og angurværir tónar 17. júlí 2006 09:00
Þrír félagar halda á þriðjudag í hringferð í kringum landið á reiðhjólum. Tilgangur ferðarinnar er að vekja athygli á Spes-samtökunum sem styrkja foreldralaus börn í Afríkuríkinu Tógó. Strákarnir, sem heita Gísli Hvanndal Ólafsson, Guðjón Heiðar Valgarðsson og Dagbjartur Ingvarsson, ætla að safna fé fyrir samtökin með ljóðalestri og angurværri rokktónlist en planið er að halda skemmtanir víðsvegar um landið. Ókeypis verður inn á uppákomurnar en gestir eru í staðinn hvattir til þess að láta fé af hendi rakna í söfnunarbauk sem verður með í för. "Ég hef hjólað mest af okkur en þó ekki farið í lengri ferðir en dagsferðir. Líkamlegt form félaga minna er ekki upp á marga fiska en annar þeirra er með áreynsluastma sem lýsir sér þannig að þegar hann hjólar þá fær hann mikinn verk í lungun og byrjar að hósta en hann verður bara með púst með sér," segir Gísli sem hefur fulla trú á því að þeir nái að klára hringinn á þremur vikum en þeir áætla að ljúka ferðinni um verslunarmannahelgina. Strákarnir ætla að hjóla 50-150 km á dag og taka þeir tjald með sér en ef veðrið verður þeim ekki hagstætt munu þeir leita húsaskjóls. "Við viljum hvetja fólk til þess að kynna sér starfsemi félagsins á heimasíðunni spes.is og gerast styrktarforeldrar. Peningarnar sem við söfnum renna beint til félagsins en alltof fáir vita af þessum samtökum." Strákarnir fara suðurleiðina og áætla að vera á Höfn þann 24. júlí, á Kárahnjúkum 28. júlí, á Akureyri 31. júlí og á Blöndósi 3. ágúst svo fáeinir áfangastaðir séu taldir upp.
Menning Mest lesið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Beckham á spítala Lífið Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Menning Fleiri fréttir Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Sjá meira