Lífið

Talar í Shrek

Justin Timberlake Þreytir frumraun sína í teiknimyndum þegar hann talar inn á Shrek 3 sem verður frumsýnd á næsta ári.
Justin Timberlake Þreytir frumraun sína í teiknimyndum þegar hann talar inn á Shrek 3 sem verður frumsýnd á næsta ári. MYND/Reuters

Söngvarinn Justin Timberlake mun ljá einum af karakterunum í teiknimyndinni Shrek 3 rödd sína. Myndin verður frumsýnd á næsta ári og bætist Timberlake þá í góðan hóp leikara en nú hefur verið staðfest að Mike Myers, Eddie Murphy, Antonio Banderas og Cameron Diaz muni verða í sínum gömlu hlutverkum.

Þetta er í fyrsta skiptið sem söngvarinn talar inn á teiknimynd en ný plata með Timberlake mun koma út í haust og hefur hann þá tónleikaferðalag um heiminn til að fylgja henni eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.