Tvö hundruð manna bolti 15. júlí 2006 08:30 Eðlilega gekk mikið á í teignum Fjölmennasti leikurinn á HM fór fram í Hannover. mynd/hlynur hallsson
Rúmlega 200 manns mættu á fótboltavöllinn í Hannover á dögunum til þess að taka þátt í fjölmennasta knattspyrnuleiknum á HM. Hlynur Hallsson myndlistarmaður átti hugmyndina að viðburðinum sem heppnaðist með miklum ágætum. "Leikar fóru 2-1 fyrir bláa liðinu," útskýrir Hlynur, "rauða liðið skoraði markið sitt úr einu vítaspyrnunni sem var dæmd." Leikurinn fór vel fram en dómarinn hafði vitaskuld í nógu að snúast við að fylgjast með öllum keppendunum. "Þetta var ábyggilega mjög erfitt fyrir hann en fólk var mjög samviskusamt ef hann dæmdi eitthvað undarlega og leiðrétti hann ef svo bar undir." Allt fór fram stórslysalaust nema hvað einn leikmaður tábrotnaði í upphituninni. "Dómarinn rak einn út af og gaf honum rauða spjaldið í fimm mínútur og þá bað hann fólk um að vera ekki að æsa sig um of - sérstaklega vegna yngri leikmannanna," útskýrir Hlynur. Atburðurinn var liður í samsýningunni Seitenwechsel sem þýski listahópurinn ART IG skipulagði í tenglsum við heimsmeistarakeppnina sem nýlega lauk í Þýskalandi en segja má að gjöringur Hlyns sé til marks um hversu sameinandi fótboltaíþróttin getur verið. "Sumir leikmannanna voru miklir fótboltaáhugamenn sem voru komnir til þess að skora mörk en það var líka hellingur af myndlistarmönnum og fleirum sem fannst bara gaman að fá að taka þátt. Síðan voru krakkar alveg niður í fjögurra ára aldurinn og fjölmargir á aldrinum 10-12 ára. Svo var ein kona um sjötugt sem spilaði með," segir Hlynur. "Það var mjög flott að fylgjast með leiknum ofan úr stúku," útskýrir listamaðurinn. "Það myndaðist hálfgerð þvaga á vellinum og þegar boltinn fór af stað tók hjörðin á rás á eftir honum. Sumir voru greinilega búnir að ákveða að vera ýmist í sókn eða vörn og sumir lágu bara á vellinum og biðu eftir boltanum." Hlynur segist sérstaklega ánægður með hversu vel íþróttamenn á svæðinu tóku viðburðinum og mættu vel. Öðrum keppendum fannst líka ótrúlegt tækifæri að fá að spila á FIFA-grasinu sem sett var á völlinn vegna heimsmeistarakeppninnar en mikil fræði búa að baki blessuðu undirlaginu sem keppt er á. Atburður þessi var einstakur í sinni röð og Hlynur skrásetti hann bæði á myndband og með ljósmyndum sem hann segist ef til vill ætla að sýna á næstunni. Þeir sem misstu af tækifæri til að taka þátt í leiknum fá því vonandi að berja hann augum, þó það verði aðeins af skjá - enda eru jú margir sem láta sér það nægja.- khh
Menning Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Fleiri fréttir Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Sjá meira