Lífið

Guðs mildi að klukkurnar biluðu

Christian Willatzen starfsmaður Strætó bs. heldur á klukkuvísunum af Hlemmi. Vísarnir eru geymdir á öruggum stað á geymslusvæði Strætó.
Christian Willatzen starfsmaður Strætó bs. heldur á klukkuvísunum af Hlemmi. Vísarnir eru geymdir á öruggum stað á geymslusvæði Strætó. MYND/Hrönn

"Klukkurnar voru mun verr farnar en okkur grunaði. Timbrið var grautfúið og það hefði getað farið illa," segir Þórhallur Halldórsson, deildarstjóri hjá Strætó bs.

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær er búið að taka niður klukkurnar þrjár sem gnæft hafa yfir Hlemmi. Úrverk klukknanna var úr sér gengið og því voru klukkurnar teknar niður. Kannski sem betur fer. Við nánari eftirgrennslan komu meiri skemmdir í ljós.

"Það var kannski guðs mildi að þær biluðu því það mátti varla snerta timbrið. Það hefði getað farið illa," segir Þórhallur.

Klukkuskífurnar voru úr timbri en klæddar bárujárni. Í þessi þrjátíu ár sem klukkurnar hafa staðið vaktina yfir Hlemmi hefur timbrið fúnað og því voðinn vís. "Það eina sem var heilt úr klukkunum voru vísarnir," segir Þórhallur deildarstjóri.

Vísarnir eru nú geymdir á vísum stað á geymslusvæði Strætó bs við Kirkjusand. Aðrir hlutir eru komnir á ruslahaugana og því ljóst að klukkurnar við Hlemm hafa sungið sitt síðasta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.