Lífið

One vinsælast

u2 Piltarnir frá Írlandi eiga vinsælasta dægurlagatexta Bretlands.
u2 Piltarnir frá Írlandi eiga vinsælasta dægurlagatexta Bretlands.

Lagið One með írsku gæðingunum í U2 endaði í fyrsta sæti í könnun sem VH1 sjónvarpsstöðin gerði í Bretlandi yfir uppáhalds dægurlagatexta áhorfenda. Lagið, sem situr nú ofarlega á vinsældalistum í nýjum búningi með Mary J. Blige, kom upphaflega út fyrir rúmum 15 árum.

Þó svo textinn hafi í raun verið saminn af Bono um sambandsslit hans, þá eru jákvæðu línurnar um sameinaða bræður og systur flestum efstar í huga.

Í öðru sæti var lagið How Soon Is Now? með hljómsveitinni The Smiths. Nirvana endaði í þriðja sæti með lagið Smells Like Teen Spirit. Aðrir listamenn sem náðu inn á topp 10 listann yfir vinsælustu dægurlagatextana voru meðal annars Bob Marley, Eminem og Coldplay.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×