Ítölsk innrás í Mosfellsbæ 14. júlí 2006 13:30 Daði Þór Einarsson mundar sprotann. Samspil Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar og Corpo Bandistico á Ítalíu.
Um þessar mundir dvelja 70 Ítalir inni á íslenskum heimilum í Mosfellsbæ. Allir þessir Ítalir eru tónlistamenn enda er um heila lúðrasveit að ræða. För Ítalinna er partur af vinasambandi Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar og Corpo Bandistico. Aðdragandinn var sá að haft var samband frá Corpo Bandistico, sem er tónlistaskóli í bænum Monzuno í grennd við Bolognia, segir Birgir D. Sveinsson deildarstjóra skólahljómsveitar Mosfellsbæjar. Við erum búin að vera í tengslum við þau undanfarið ár að undirbúa gagnkvæma heimsókn, sem nú er orðin að veruleika. Fyrr í sumar fór 45 manna hópur skólahljómsveitar Mosfellsbæjar út til Ítalíu og naut þar gestrisni meðlima Corpo Bandistico í viku. Krökkunum var boðið í heimahús og fengu þeir að kynnast ítölsku heimilislífi frá fyrstu hendi. Eins og lög gera ráð fyrir var heilmikið spilað. Að sögn Daða Þórs Einarsson stjórnanda var hápunkturinn sameiginlegir lokatónleikar Mosfellinga og Corpo Bandistico sem fram fóru í 1.000 metra hæð, en auk þess að kynna íslenska tónlist las Margrét Ponzi upp íslensk ljóð bæði á íslensku og ítölsku við góðar undirtektir innfæddra. Að tónleikunum loknum var svo haldið til Rimini þar sem hópurinn slappaði af í viku auk þess að fara í fjölmargar skoðunaferðir. Nú eru Ítalirnir komnir hingað til lands að smakka slátur og sviðakjamma á íslenskum heimilum. Dagskrá þeirra er fjölbreytt en þeir fræðast meðal annars um íslenska hestinn, skoða Mosfellssveitina og Þingvelli, fara í hvalaskoðun, heimsækja Þjóðminjasafnið og öllum er að sjálfsögðu dýft ofaní Bláa Lónið. Á morgun laugardag kl. 17 halda Corpo Bandistico tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Þriðjudaginn 18. júlí verða svo sameiginlegir lokatónleikar í Gagnfræðaskólanum í Mosfellsbæ kl. 20. Við hvetjum alla, sérstaklega Mosfellinga, til að mæta og sjá Ítalina leika listir sínar, en þeir kunna sitt hvað fleira fyrir sér en að spila fótbolta, segir Daði.
Menning Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fleiri fréttir Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Sjá meira