Blóðugt blaðastríð framundan 2. júlí 2006 07:45 David Montgomery Samkeppni við nýtt frídagblað í haust í Danmörku vekur engan ugg í brjósti nýs eiganda Orkla Media. afp.nordicphotos
David Montgomery, nýr eigandi fjölmiðlasamsteypunnar Orkla Media, er reiðubúinn undir blóðugt stríð á dagblaðamarkaði í Danmörku þegar útgáfa fríblaðs að hætti Fréttablaðsins hefst á helstu þéttbýlisstöðumí haust. Orkla Media er eitt þeirra félaga sem Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar sem er móðurfélag 365 Miðla, hafði augastað á lengi vel en fyrirtækið gefur út dagblöð á borð við Berlingske Tidende, Weekendavisen, B.T. og Aarhus Stiftstidende auk annarrar útgáfu. Ekkert varð úr þeim kaupum en fyrirtækið var selt fyrir skömmu breska fyrirtækinu Mecom Group. Á fundi sem nýi eigandinn hélt í Noregi í gær kom skýrt fram að hann hræddist ekki væntanlega samkeppni fríblaðs Dagsbrúnar en fyrirtækið væri fyllilega undir þá samkeppni búið og ákveðið fjármagn hefði þegar verið sett til hliðar til að mæta þeirri samkeppni sem þá verður. Vildi hann ekki nefna upphæðir en fjölmiðlamenn í Danmörku búast flestir við að sú barátta verði blóðug og að útgáfa einhverra þeirra fjölmörgu dagblaða sem gefin eru út þar í landi leggist af í kjölfarið. Montgomery lét einnig hafa eftir sér að ekki séu neinar áætlanir uppi á þessu stigi um að leggja niður dagblöð samsteypunnar né heldur fækka störfum. Margir starfsmenn óttast að slíkt verði óhjákvæmilegt þegar frídagblaðið verður gefið út í haust í samkeppni við áskriftarblöðin. - aöe
Innlent Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Sjá meira