McCartney brjálaður út í Mills 21. október 2006 13:30 Allt brjálað Paul McCartney ætlar að beita sér af fullum krafti gegn ásökunum fyrrverandi eiginkonu sinnar, Heather Mills. MYND/Getty
Paul McCartney er brjálaður út í fyrrverandi eiginkonu sína, Heather Mills, vegna ásakana um að hann hafi beitt hana ofbeldi meðan á hjónabandi þeirra stóð. Dómskjölum var lekið í fjölmiðla en þar kom fram að Mills ætlar að bera vitni um að McCartney hafi lamið hana, neytt áfengis og ólöglegra lyfja. Breska blaðið The Daily Mail komst fyrst yfir þrettán síðna lýsingu á hjónabandinu sem lögð verður fram við réttarhöldin en áætlað er að þau hefjist í byrjun næsta árs. Lögfræðingastóð bítilsins fyrrverandi birti í gær yfirlýsingu vegna málsins og þar kom fram að McCartney ætli sér ekki að tjá sig persónulega um málið en hann hygðist jafnframt ætla beita sér af fullum krafti gegn þessum röngu ásökunum. Payne Hicks Beach, lögfræðingur McCartneys, sagði að skjólstæðingur sinn væri miður sín en bætti því við að hann vonaði að málið myndi fara í réttan farveg og yrði haldið frá kastljósi fjölmiðlanna. Ekki eingöngu eðli málsins vegna heldur einnig vegna barnanna en þetta er fyrst og fremst einkamál þeirra tveggja, sagði Beach við fjölmiðla í gær. Heather Mills vildi ekki tjá sig um málið þegar fjölmiðlar höfðu upp á henni við upptökur á sjónvarpsþætti fyrir BBC. Lögfræðingateymi hennar hjá Mischon de Reya vildi heldur ekki segja neitt um hvort upplýsingum hefði verið vísvitandi lekið til fjölmiðla og vonuðust þeir til að þeir myndu láta af umfjöllun sinni um þetta viðkvæma mál. Engu að síður hefur breska slúðurpressan farið hamförum í fréttaflutningi sínum af skilnaðinum sem gæti orðið sá dýrasti í sögu Bretlands.
Menning Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Robbie Williams einhverfur Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Fleiri fréttir Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Sjá meira