193.000 tonn af þorski 29. júní 2006 07:00 Einar K. Guðfinnsson
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að leyfilegur heildarafli þorsks á næsta fiskveiðiári verði 193 þúsund tonn en hann er 198 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári sem lýkur 31. ágúst næstkomandi. Við ákvörðun á heildarafla þorsks á næsta fiskveiðiári er byggt á breyttri aflareglu. Nú ákvarðast aflamark sem meðaltal af aflamarki síðasta fiskveiðiárs og hlutfalli af viðmiðunarstofni í upphafi úttektarárs. Þetta er í samræmi við tillögur Aflareglunefndar frá árinu 2004 en áfram er miðað við óbreytt veiðihlutfall, 25 prósent. Þetta hefur í för með sér að veidd verða fimm þúsund tonnum meira af þorski á komandi fiskveiðiári en annars hefði verið gefið leyfi fyrir og er umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Aðspurður um hvort ákvörðun fiskveiðiheimilda í þorski umfram ráðgjöf gæti haft slæm áhrif á afrakstursgetu þorsks í framtíðinni svaraði sjávarútvegsráðherra að hann liti svo á að úthlutunin væri mjög ábyrg og annars hefði hann aldrei lagt hana til. "Ég vek athygli á því að um litlar breytingar er að ræða frá þeirri aflareglu sem var í gildi. Ég vil undirstrika að þorskstofninn okkar er ekki undir sérstakri vá." Einar segir stóra málið vera hvernig staðið verði að uppbyggingu þorskstofnsins og til þess vanti heildarmynd. "Þess vegna bað ég Hagfræðistofnun Íslands að gera úttekt á þjóðhagslegum áhrifum af breyttri aflareglu og skoða áhrif af mismunandi veiðihlutfalli á þorski." Hér vísar ráðherra til úttektar sem Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, mun leiða og tekur til áhrifa breyttrar aflareglu og veiðihlutfalls til lengri og skemmri tíma fyrir efnahagslífið í heild, sjávarútveginn, einstök fyrirtæki, útgerðarstaði og landsvæði. Við ákvörðun á heildarafla annarra fisktegunda er stuðst í meginatriðum við tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar. Undantekning er að leyfilegt verður að veiða sama heildarmagn af ýsu og á yfirstandandi fiskveiðiári, eða 105 þúsund tonn. Tillaga Hafrannsóknastofnunarinnar kvað á um 95 þúsund tonn. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir fátt koma á óvart. "Það eru reyndar breytingar á aflareglunni í þorski og ég held að það sé skynsamleg breyting. Þessi aðferðafræði gengur til dæmis ekki eins nærri ungfiski þegar hann er að koma inn í veiðina."
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira