Launin hækkuð um 22 þúsund krónur 27. júní 2006 08:00 Mun skila sér að fullu Starfsmenn IGS ættu að fá um 22 þúsund króna hækkun þegar samkomulag ASÍ og SA frá því í síðustu viku kemur til framkvæmda í byrjun ágúst. Samkomulagið ætti að skila sér að fullu þar sem fólkið hjá IGS hefur ekki fengið neitt launaskrið síðasta árið.
Vinnumarkaður Starfsmenn IGS fá allt að 22.300 króna launahækkun þegar greitt verður samkvæmt samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins frá því í síðustu viku. Umsamdar fimmtán þúsund krónur hafa þau áhrif að taxtar hækka og álag og yfirvinna gefa fleiri krónur. "Allt þetta fólk fær útreikninga á breyttum launatöflum. Í ljósi þess að þetta fólk hefur ekki notið neins launaskriðs þá munu þessar breytingar skila sér að fullu til þeirra. Við munum sjá launataxta hækka hátt í 22 þúsund út af áhrifum fimmtán þúsund krónanna," segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands. Kristján segir að launahækkunin svari þó ekki kröfum starfsmanna IGS. "Þau telja hana engan veginn nægjanlega. Það kemur sterkt fram að þau hafa alltaf verið niðurnjörvuð á taxta og ekkert launaskrið fengið í ár og áraraðir," segir hann og telur að hluti af vandamálinu sé sá að starfsmennirnir séu orðnir langþreyttir á samskiptum við yfirmenn í starfsmannahaldi. "Það er eins og allt hafi snúist í höndum yfirmannanna í samskiptum við starfsmennina. Stjórnendurnir eru með vindinn í fangið í öllum sínum aðgerðum. Þeir voru til að mynda að taka tímastjórnunarkerfið Time Care í notkun og það mætir gríðarlegri andstöðu. Því er samt rutt yfir starfsmennina án þess að þeir fái rönd við reist," segir hann. Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri IGS, segir að verið sé að innleiða tímastjórnunarkerfið og ekki hafi verið litið svo á að það væri óþægilegt fyrir starfsmenn heldur frekar jákvætt því að þá gefist þeim kostur á að velja sér vinnutíma. Hann kveðst hafa heyrt af andstöðu en reynt að kynna kerfið til að fólk fengi jákvæðari sýn. Kristján hefur heyrt af því að erlendum starfsmönnum IGS hafi verið hótað. Þetta telur Gunnar að sé með ólíkindum að blaðamenn hlusti á. Vandamálið sé þrískipt: launamálin, órói sem fylgi miklu álagi og aðstöðumál. "Við ætlum að hitta fólkið okkar og reyna að finna einhverjar leiðir til að lægja öldurnar," segir hann. Jón Karl Ólafsson, forstjóri FL Group, sagði ákveðin vandamál á borðinu sem verði leyst í samningum við starfsmenn. Búist er við öðru setuverkfalli um næstu helgi verði málið ekki leyst þá.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira