Segir fyrirtæki hafa kvartað yfir Visa 15. júní 2006 07:15 Undirskrift á greiðslukort Kortafærsla er eins og rafræn ávísun. Kaupmenn senda kortafærslur til fyrirtækja sem greiða upphæðina inn á reikninga kaupmanna og taka ákveðna þóknun í sinn hlut. MYND/e.ól. "
Það er ekkert til í þessum orðum Halldórs og við höfnum þeim alfarið," segir Jóhannes Ingi Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar, vegna ummæla Halldórs Guðbjarnarsonar, forstjóra Visa Ísland, um að húsleit sem gerð var hjá fyrirtækinu í fyrradag eigi upptök sín hjá keppinautnum PBS, sem Kortaþjónustan hefur umsýslu fyrir á Íslandi. Jóhannes segist vita til þess að einstök fyrirtæki hafi kvartað yfir Visa Ísland til Samkeppniseftirlitsins og telur það geta verið ástæðu rannsóknarinnar nú. "Visa Ísland býður upp á lánastarfsemi á borð við raðgreiðslur sem við gerum ekki. Og þeir neita að veita okkar viðskiptavinum kost á slíkum raðgreiðslum nema þeir færi öll sín viðskipti til sín. Samkvæmt samkeppnislögum er bannað að skilyrða kaup á einu við kaup á öðru og hugsanlega er Samkeppniseftirlitið að skoða það út frá kvörtunum fyrirtækja." Kortaþjónustan selur þjónustu danska fyrirtækisins PBS, sem er í eigu danskra banka og sparisjóða, á Íslandi. PBS hefur verið í samkeppni við Visa Ísland og Kreditkort frá árinu 2002 um færsluhirðingu sem snýst um uppgjör á kortafærslum. Tekið er á móti kortafærslum úr posum fyrirtækja, færslan gerð upp og greitt inn á reikning viðkomandi fyrirtækis. Þóknanir eru síðan ákveðin prósenta af hverri færslu. Visa Ísland og Kreditkort greiða fyrirtækjum um mánaðamót eftir lok kortatímabils og PBS borgar tveim dögum eftir að færslan berst. Visa Ísland og Kreditkort stunda ekki færsluhirðingu á kortum hvors annars og eru því ekki í samkeppni. Ný lög um fjármálafyrirtæki, sem voru innleidd gegnum EES árið 2002, gerðu PBS kleift að koma inn á íslenskan markað og annast færsluhirðingu vegna korta frá bæði Visa Ísland og Kreditkortum. Að sögn Jóhannesar hefur Visa Ísland stundað mjög harða samkeppni og sýnt mun harkalegri vinnubrögð en Kreditkort. "Hvar mörkin eru á því hvað er lögmæt, hörð samkeppni og hvað er misnotkun er hugsanlega nú í skoðun hjá Samkeppniseftirlitinu." Samkeppniseftirlitið gefur ekki upp hvort rannsóknin komi í kjölfar einstakra kvartana eða kæru. Að sögn starfsmanns getur stofnunin tekið slíkar rannsóknir upp að eigin frumkvæði.
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Sjá meira