Forystuháskóli á alþjóðavísu í mótun 15. júní 2006 08:00 Frá opnuninni í gær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands formlega í gær. MYND/valli
Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfaglegar rannsóknir við Háskóla Íslands var formlega opnuð í gær af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Meginhlutverk stofnunarinnar er að vera vettvangur fyrir þverfaglegar rannsóknir, samstarf og fræðslu um sjálfbæra þróun, umhverfi, samfélag og efnahag. Opnun stofnunarinnar fylgir í kjölfar formlegs samkomulags Háskóla Íslands og Jarðarstofnunar Columbia-háskóla í Bandaríkjunum um samvinnu á sviði rannsókna og kennslu er varða sjálfbæra þróun. Þar verða verkefni á sviði loftlagsbreytinga og þróun á tækni til að bregðast við loftslagsbreytingum í forgrunni og mun stofnun Sæmundar fróða taka virkan þátt í því samstarfi. Dr. Guðrún Pétursdóttir er forstöðumaður stofnunarinnar. "Þegar ég er spurð að því hvað sjálfbærni sé svara ég oft með því að spyrja til baka hvort viðkomandi myndi fá eitthvað lánað hjá nágranna sínum og skila því hálfónýtu til baka. Hækkandi hitastig vegna útblásturs gróðurhúsalofttegunda getur bókstaflega ráðið því hvort jörðin verði byggileg eða ekki í framtíðinni. Við trúum því varla að vandamálið sé svona alvarlegt en við getum ekki leyft þessu að halda svona áfram. Það er óábyrgt og við eigum engra kosta völ nema takast á við þennan vanda." Guðrún segir vísindamenn Háskólans hafa gegnt lykilhlutverki í alþjóðlegu samstarfi til lausnar þessa alheimsvanda og með Stofnun Sæmundar fróða sé vettvangur áframhaldandi þróunar í rannsóknum og hagnýtum verkefnum tryggður. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir Stofnun Sæmundar fróða hafa mikla þýðingu fyrir háskóla- og rannsóknasamfélagið á Íslandi en einnig alþjóðasamfélagið í heild. "Við Íslendingar getum og eigum að taka forystu í þessum málum því við eigum frábæra vísindamenn sem eru í forystu á sínu sviði. Þetta sýnir hvernig Háskólinn er að byggjast upp sem forystuháskóli á alþjóðavísu og stofnunin mun styðja það markmið." Í tengslum við opnunina flutti fyrirlestur í boði forseta Íslands, dr. Rajendra K. Panchauri, stjórnarformaður orkurannsóknarstofnunarinnar á Indlandi. Dr. Panchauri fjallaði um lykilþætti opinberrar stefnumótunar og tækniumhverfi í sjálfbærum heimi. Kom fram í máli hans að lausnin á vanda alþjóðasamfélagsins í tengslum við loftlagsbreytingar fælist fyrst og fremst í hugarfarsbreytingu og að allar þjóðir heims yrðu að koma að lausn vandans á jafnréttisgrundvelli. Fyrirlesturinn var sá þriðji í fyrirlestraröð forsetaembættisins - Nýir straumar.
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ Sjá meira