Gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrautar verða mislæg 14. júní 2006 07:00
Hugsum stórt, horfum langt og byrjum strax eru einkunnarorð nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn Reykjavíkur. Meirihlutaskipti urðu á fundi borgarstjórnar í gær, þeim fyrsta eftir kosningar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Sjálfstæðisflokki var kjörinn borgarstjóri, Björn Ingi Hrafnsson Framsóknarflokki var kjörinn formaður borgarráðs og Hanna Birna Kristjánsdóttir Sjálfstæðisflokki forseti borgarstjórnar. Að fundi loknum kynntu oddvitar flokkanna málefnaáherslur sínar sem skiptast í fjóra málaflokka; málefni aldraðra, fjölskyldumál, skipulags- og samgöngumál og umhverfistengd verkefni. Þegar á að ráðast í 24 verkefni, stór og smá, en þeirra viðamest er gerð mislægra gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Hefur það lengi verið eitt af helstu baráttumálum sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Fram kom í máli Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar að fjárhagsstaða Reykjavíkur væri verri en áður hefði komið fram. Byggði hann þau orð sín á samtölum við embættismenn borgarinnar og sagði að fyrir dyrum stæði úttekt á fjármálum borgarinnar. Um leið lýsti Vilhjálmur yfir að ekki stæði til að lækka útsvar í Reykjavík en fasteignaskattar verði lækkaðir í þrepum um 25 prósent á kjörtímabilinu. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum hyggst nýr borgarstjórnarmeirihluti gera breytingar á stjórnkerfi borgarinnar. Þegar hefur verið ákveðið að færa samgöngumál undir umhverfisráð sem mun eftirleiðis heita samgöngu- og umhverfisráð. Forræði samgöngumála hafa að undanförnu verið á höndum þriggja ráða; framkvæmdaráðs, skipulagsráðs og umhverfisráðs. Þá verða málefni leikskólanna klofin út úr menntaráði og færð undir sérstakt ráð; leikskólaráð. Aukinheldur hefur verksvið jafnréttisnefndar verið útvíkkað og henni breytt í mannréttindanefnd. Í ræðu sinni á borgarstjórnarfundinum þakkaði Vilhjálmur það mikla traust sem honum er sýnt með kosningu í embætti og sagðist hann gera sér afar góða grein fyrir hve mikil ábyrgð fylgir starfinu. Kvaðst hann ætla að kappkosta að sinna því af kostgæfni og alúð og leggja áherslu á gott samstarf við alla borgarfulltrúa og starfsmenn borgarinnar. "Ég ætla mér að vera borgarstjóri allra Reykvíkinga og þjóna borgarbúum á skilvirkan hátt með kurteisi og tillitsemi að leiðarljósi," sagði Vilhjálmur. Undir lok máls síns þakkaði hann, fyrir hönd borgarbúa, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, fráfarandi borgarstjóra, fyrir vel unnin störf í þágu borgarbúa. Sagði hann samstarf þeirra hafa verið á heiðarlegum grunni byggt og mæti hann það mikils. Óskaði hann Steinunni og fjölskyldu hennar heilla í lífi og starfi í framtíðinni.
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ Sjá meira