Mikilvægur áfangifyrir Háskóla Íslands 14. júní 2006 07:15 Frá undirritun Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Jeffrey D. Sachs við undirritunina í gær. MYND/heiða
Háskóli Íslands og Jarðarstofnun Kólumbíuháskóla gengu í gær formlega til samstarfs um rannsóknir og kennslu. Samkomulagið var undirritað af Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, og Jeffrey D. Sachs, forstöðumanni Jarðarstofnunarinnar, og er til næstu fimm ára. Samkomulagið var undirritað að Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, viðstöddum. Mest áhersla verður lögð á verkefni á sviði loftslagsbreytinga, sjálfbærrar þróunar og tækni til að bregðast við og draga úr loftslagsbreytingum. Undirritunin var liður í alþjóðlegu samráðsþingi Jarðarstofnunarinnar um loftslagsbreytingar sem sett var í Reykjavík í gær. Þingið sækja rúmlega 150 stjórnendur fjölþjóðlegra stórfyrirtækja, stofnana og félagasamtaka alls staðar að úr heiminum. Jeffrey D. Sachs, sem er einn virtasti hagfræðingur heims og ráðgjafi Kofis Annan, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, sagði í ávarpi í tengslum við undirritunina að alþjóðastjórnmál væru ekki hentugur vettvangur til að leysa vandamál eins og að draga úr loftslagsbreytingum og þróun tækni til að bregðast við þeim. "Við þurfum að mynda nýtt alþjóðlegt tengslanet háskóla og rannsóknastofnana um heim allan í samstarfi við viðskiptasamfélagið," sagði Sachs. Ekki síst til að koma fram með nýjar hugmyndir, raunhæfar lausnir og meiri skilning á þeim vanda sem við er að glíma í heiminum í dag. Samstarf háskólanna bæri að skoða sem hluta af hinu alþjóðlega tengslaneti sem verði að koma til ef leysa á þann vanda sem mannkyn stendur frammi fyrir. Sachs telur að Íslendingar hafi mjög margt að bjóða heiminum og þá ekki síst á sviði orkumála. Aðspurð um mikilvægi samkomulagsins í tengslum við stefnu Háskóla Íslands í að komast í hóp fremstu menntastofnana heims, segir Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor, að samstarfið við Kólumbíuháskóla sé mikilvægt skref í þeirri sókn. Kristín segir að Kolumbíuháskóli sé einn albesti háskóli heims og verið sé að formgera fjölbreytt samstarf sem hefur verið til staðar á milli háskólanna í nokkurn tíma. Nú gefist fleiri tækifæri til samstarfs og fjáröflunar til frekari verkefna.
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ Sjá meira